Fréttasafn eftir mánuðum//

30.04.2004  //

Greiðsla fyrir Orlofshús sumarið 2004

Þeir hjúkrunarfræðingar sem fengu úthlutað orlofshúsi fyrir sumarið 2004 eru minntir á að greiða leiguna fyrir 7. maí n.k. eða tilkynna það á skrifstofu félagsins.

30.04.2004  //

Orlofsuppbót maí 2004

Orlofsuppbót er greidd út 1. júní ár hvert. Hjúkrunarfræðingar sem eru í starfi til 30. apríl næst á undan, eiga að fá orlofsuppbót. Orlofsuppbót er sérstök eingreiðsla og er 2004 kr. 10.200. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.

28.04.2004  //

NÝTT ? NÝTT - Gistimiðar á Fosshótelum í Reykjavík og úti á landi fyrir félagsmenn allt árið

Orlofssjóður niðurgreiðir hvern miða um kr. 1.500 og verða þeir seldir á kr. 3.500 hver, sem gildir fyrir tvo í tveggja mana herbergi með baði ásamt morgunverði. Aukagjald þarf félagsmaður samt að greiða á hótelunum, sjá yfirlit.

21.04.2004  //

Heimsóknir á vef félagsins fram úr væntingum

34884 uppflettingar gerðar á www.hjukrun.is í marsmánuði. Spjallið hefur þó ekki náð fótfestu.

20.04.2004  //

Skráning á ráðstefnuna HJÚKUN 2004, gengur vel. Lægra gjaldið framlengt til 23. apríl n.k.

Ákveðið hefur verið að láta lægra ráðstefnugjaldið gilda út þessa viku eða til og með 23. apríl n.k. og eru hjúkrunarfræðingar hvattir til að nýta sér þetta tækifæri.

16.04.2004  //

Úthlutun orlofsstyrkja og orlofshúsa er lokið fyrir sumarið 2004.

Flestir punktar á félagsmann í félaginu eru núna 148 punktar. Til að fá orlofsstyrk þurfti 74 pnkta að þessu sinni.

13.04.2004  //

Hvert stefnir í kjarasamningum hjá ríkinu ?

Ráðstefna um stefnumörkun og þróun. 15. apríl kl. 13:00 á Hótel Sögu

05.04.2004  //

Vefkönnun um ráðstefnuna Hjúkrun 2004 er lokið

52% þátttakenda ætla á ráðstefnuna samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar