Fréttasafn eftir mánuðum//
Gufa gæti eytt MÓSA bakteríum á sjúkrahúsum
Samkvæmt fréttum BBC gæti tæki sem framleiðir yfirhitaða gufu allt að 800 gráðum hjálpað í baráttunni við sjúkrahússýkingar eins og MÓSA. Gufan er framleidd á örfáum sekúndum með því að láta alkahól og vetnisperoxíð streyma í gegn um dufthvarfa í litlu handtæki.
6 heilbrigðisstarfsmenn með búlgarskt ríkisfang framseldir til Búlgaríu - Við komuna til Búlgaríu voru þeir samstundis náðaðir.
Heilbrigðisstarfsfólkið sem eru 5 hjúkrunarfræðingar og einn læknir hafði í fyrstu hlotið dauðadóm fyrir að hafa viljandi smitað líbýsk börn með HIV. Dómnum var fyrir skemmstu snúið í lífstíðarfangelsi. Heilbrigðisstarfsfólkið hafnaði alltaf sök í málinu.
Líbýumenn setja fram ný skilyrði fyrir framsali búlgarskra hjúkrunarfræðinga og palestínsks læknis
Samkvæmt fréttum www.mbl.is hafa yfirvöld í Líbýu hafa farið fram á að Evrópusambandið kosti fornleifauppgrefti, lagningu hraðbrautar frá austurlandamærum landsins til vesturlandamæranna og járnbrautateina sem muni tengja hafnarbæi í Líbýu við borgir Afríku auk fyrri krafna sinna um að sambandið kosti meðferð fyrir HIV-smituð börn í landinu
Skortur á hjúkrunarfræðingum
Áslaug Birna Ólafsdóttir, Bjarney Sigurðardóttir og Hildur Sigurjónsdóttir skrifa um kjör hjúkrunarfræðinga í Morgunblaðinu 21. júlí og segja m.a. frá því að forsvarsmenn atvinnulífsins skilji að til að fá hæft starfsfólk þurfi að bjóða því góð laun.
Sumarveðrið, sumarlokanir og sumarleyfi valda miklu álagi á slysa- og bráðamóttöku LSH
Í Morgunblaðinu í dag 21. júlí skrifar Gunnar Páll Baldvinsson umálagið á slysa- og bráðamóttöku LSH og ræðir m.a við Rögnu Gústafsdóttur hjúkrunardeildarstjóra.
Dauðadómi breytt í lífstíðarfangelsi
Dómsmálaráð Líbýu hefur mildað dóm palestínsks læknis og fimm búlgarskra hjúkrunarfræðinga úr dauðadómi í lífstíðarfangelsi. Þetta hefur fréttastofan AFP eftir hátt settum líbískum embættismanni. Búlgaría og Líbýa hafa gert með sér framsalssamninga svo að sexmenningarnir ættu að geta setið af sér fangelsisvistina í Búlgaríu ef samningar nást um það.
Vonir um að samkomulag náist í dag um lausn hjúkrunarfræðinga og læknis í Líbýu
Vonir standa til þess að samkomulag náist um lausn palestínsks læknis og fimm búlgarskra hjúkrunarfræðinga, sem dæmd hafa verið til dauða í Libýu, í dag. Bæði fulltrúar líbanskra og evrópskra yfirvalda segja samkomulag um lausn fólksins nánast í höfn en fólkið var sakfellt í desember á síðasta ári fyrir að hafa valdið dauða 426 barna með því að smita þau af HIV veirunni.
Dómstólaráð Líbíu endurskoðar dauðadóm yfir 5 hjúkrunarfræðingum og einum lækni mánudaginn 16. júlí.
Dómstólaráð Líbíu mun koma saman á mánudaginn 16. júlí og ákveða örlög sexmenninganna. Dauðadómur yfir þeim var staðfestur í morgun. Dómstólaráðið ákvað að taka málið að sér og getur mildað dóminn eða náðað fólkið. Embættismenn í Líbíu segja það þó háð samkomulagi um bætur fyrir fjölskyldur þeirra barna sem smituðust svo að þær geti borgað fyrir umönnun barna sinna.
Nýr styrktarsjóður við Háskóla Íslands í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum
Nýr styrktarsjóður hefur verið stofnaður við Háskóla Íslands, Rannsóknasjóður Ingibjargar R. Magnúsdóttur. Stofnskrá sjóðsins var undirrituð í dag af Kristínu Ingólfsdóttur rektor og Ingibjörgu R. Magnúsdóttur, stofnanda sjóðsins. Rannsóknasjóður Ingibjargar R. Magnúsdóttur er fyrsti sjóðurinn á Íslandi sem veitir styrki til rannsókna í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum. Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum og verða veittir styrkir til hjúkrunarfræðinga og ljómæðra í doktorsnámi, sem falla að markmiði sjóðsins
Ávarp þáverandi heilbrigðisráðherra Sivjar Friðleifsdóttur á fulltrúaþingi Fíh 2007 er nú aðgengilegt á vefsvæði Fíh.
Alllengi hefur verið beðið eftir texta ávarpsins, en vegna anna í ráðuneyti gafst ekki kostur á að taka efnið saman fyrr. Ræðan er nú komin á vef Fulltrúaþingsins .
Fréttasafn
2013
2012
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2011
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2010
jan, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2009
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2008
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2007
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2006
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2005
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2004
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2003
feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
