Fréttasafn eftir mánuðum//

25.09.2008  //

Kjarasamningur Fíh við Skjól og Eir samþykktur

Kynningar- og kjörfundur var haldinn í húsakynnum Fíh í gær og var kjarasamningurinn samþykktur með 95% atkvæða þeirra sem mættu á fundinn.

19.09.2008  //

Ljósmæður og fjármálaráðherra samþykktu miðlunartillögu ríkissáttasemjara

Bæði ljósmæður og fjármálaráðherra samþykktu miðlunartillögu ríkissáttasemjara, sem lögð var fram á mánudag, og er því kominn á kjarasamningur milli þessara aðila.

18.09.2008  //

Hjúkrunarfræðingi dæmdar miskabætur

Hæstiréttur hefur fallist á kröfu konu, sem starfaði sem hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum, um að ógilda beri þá ákvörðun stjórnenda spítalans að flytja konuna til í starfi eftir að karlmaður, sem var samstarfsmaður konunnar, sakaði hana um kynferðislega áreitni

18.09.2008  //

Herdís Sveinsdóttir kosin formaður WENR

Á fundi sem haldinn var í Vínarborg 2. september sl. var Herdís Sveinsdóttir kosin formaður Samtaka evrópskra hjúkrunarrannsakenda (WENR). Herdís er prófessor við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og fyrrverandi formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

11.09.2008  //

Ný lög um sjúkratryggingar samþykkt í gær

Frumvarp um sjúkratryggingar varð að lögum í gær. Með þeim verða öll verk innan heilbrigðisþjónustunnar kostnaðargreind og fjármagn mun fylgja sjúklingum milli stofnana.

10.09.2008  //

Kjarasamningur við Skjól og Eir undirritaður

Fíh undirritaði í dag 10. september kjarasamning við Skjól og Eir. Kynningar- og kjörfundur verður haldinn Miðvikudaginn 24. september kl. 16:30

09.09.2008  //

Sigurður Guðmundsson, landlæknir, verður forseti á heilbrigðisvísindasviði HÍ - Hjúkrunarmenntun heyrir undir sviðið

Tilkynnt var í Háskóla Íslands í dag hverjir hafa verið valdir forsetar fimm nýrra fræðasviða skólans. Um er að ræða félagsvísindasvið, heilbrigðisvísindasvið, hugvísindasviði, menntavísindasvið og verkfræði- og náttúruvísindasvið.

08.09.2008  //

Kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu samþykktur.

Kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu frá 25. ágúst sl. var samþykktur með 98% greiddra atkvæða. Alls voru 223 á kjörskrá. Atkvæði greiddu 54 eða 24,22%.

08.09.2008  //

Kjarasamningur við Krabbameinsfélag Íslands undirritaður

Fíh undirritaði í dag 8. september kjarasamning við Krabbameinsfélag Íslands. Kynningar- og kjörfundur verður haldinn á næstu dögum.

05.09.2008  //

Umsóknarfrestur vegna styrkja í Styrktarsjóði og Sjúkrasjóði BHM sem miðast við almanaksárið 2008 rennur út 9. desember n.k.

Styrktarsjóður og Sjúkrasjóður BHM minna hjúkrunarfræðinga sem eiga aðild að sjóðunum á að umsóknarfresti lýkur þann 9. desember.

04.09.2008  //

Samstaða með ljósmæðrum

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga styður samstöðu við ljósmæður á Austurvelli á morgun. Hjúkrunarfræðingar eru hvattir til að sýna ljósmæðrum samstöðu í kjarabaráttu þeirra með því að mæta á Austurvöll kl. 12:15 á morgun, föstudaginn 5. september.

04.09.2008  //

Sáttafundi samninganefnda Ljósmæðrafélags Íslands og fjármálaráðuneytisins slitið án árangurs

Sáttafundi samninganefnda Ljósmæðrafélags Íslands og fjármálaráðuneytisins var slitið í húsakynnum ríkissáttasemjara um klukkan 15:30 í dag. Nýr sáttafundur hefur ekki verið boðaður í deilunni fyrr en 9. september.

04.09.2008  //

Hjúkrunarfræðingar munið að kjósa um kjarasamninginn ykkar við SFH

Kjarasamningur Fíh við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) var undirritaður þann 25. ágúst s.l. Samningurinn var kynntur í gær 3. september og kjörfundur hófst strax í kjölfarið í húsakynnum Fíh við Suðurlandsbraut 22. Kjörfundi lýkur á morgun 5. september kl. 17:00. Hjúkrunarfræðingar sem starfa á eftirfarandi stofnunum hafa atkvæðisrétt:

04.09.2008  //

Dregur úr aðsókn að námi í hjúkrun við Háskóla Íslands, full aðsókn við Háskólann á Akureyri - Hefur alvarleg áhrif varðandi manneklu

Hjúkrunarfræðinemum á fyrsta ári í Háskóla Íslands hefur fækkað verulega frá því í fyrra þrátt fyrir að fjöldatakmörkun hafi verið felld niður. Nemendur á fyrsta ári eru 86 talsins í haust en voru 115 í fyrrahaust. Á sama tíma er full aðsókn að námsplássum í hjúkrun við Háskólann á Akureyri eða 48. Í stað 126 nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga til starfa á Íslandi árið 2012 munu þeir einungis verða 110

03.09.2008  //

Alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO) stofnar til opinbers áheyrnarfundar um drög að stöðlum um alþjóðlegar ráðningar heilbrigðisstarfsfólks landa á milli "code of practice on the international recruitment of health personnel "

Öllum aðilum sem eiga hagsmuna að gæta varðandi staðla um alþjóðlegar ráðningar heilbrigðisstarfsfólks landa á milli, er boðið að koma sjónarmiðum sínum á framfæri á opinberu vefrænu áheyrnarkerfi sem sett er upp af WHO . Framtakið mun gefa öllum kost á að hugsa um og gera athugasemdir við drög að stöðlunum. Öll innlegg í vefrænu áheyrninni munu eiga þátt í þróun staðla um alþjóðlegar ráðningar heilbrigðisstarfsfólks landa á milli.