Fréttasafn eftir mánuðum//

28.12.2010  //

Umfjöllun stjórnar um niðurskurð

Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur á tveimur síðustu fundum sínum fjallað um tillögur stjórnvalda um niðurskurð í heilbrigðisþjónustu. Fulltrúar svæðisdeilda félagsins í stjórn hafa sérstaklega fylgst með boðuðum breytingum á þeirra svæði og gert stjórn grein fyrir yfirvofandi breytingum.

20.12.2010  //

Fréttir af kjaramálum

Samninganefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur nú fundað tvisvar sinnum með Samninganefnd ríkisins. Samninganefndirnar munu funda næst í fyrstu viku janúar.

20.12.2010  //

Gerðardómur sýknar BHM af kröfu Fíh

Gerðardómur hefur sýknað Bandalag háskólamanna (BHM) af kröfu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) um hlutdeild í eignamyndun sjúkrasjóðs og styrktarsjóðs BHM. Fíh krafðist hlutdeildar í eignamyndun sjóðanna þann tíma sem félagið hafði verið aðili að BHM, með tilvísun í 21. gr. laga BHM.

20.12.2010  //

Boðað til samráðsfundar formanna fagfélaga um eflingu heilsugæslunnar

Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur boðað formenn átta fagfélaga heilbrigðisstarfsmanna til samráðsfundar um eflingu heilsugæslunnar og samstarf þeirra heilbrigðisstarfsmanna sem þar starfa. Til fundarins er boðað í framhaldi þeirrar umræðu sem farið hefur fram undanfarið um skort á heimilislæknum og viðbrögð við honum.

18.12.2010  //

Styrkveitingar úr minningarsjóðum í varðveislu Fíh

Stjórnir minningarsjóðs Hans Adolfs Hjartarsonar og minningarsjóðs Kristínar Thoroddsen úthlutuðu styrkjum úr minningarsjóðunum fyrir nokkru.

17.12.2010  //

Rannsókna- og vísindasjóður hjúkrunarfræðinga auglýsir eftir umsóknum um styrki

Rannsókna- og vísindasjóður hjúkrunarfræðinga auglýsir að nýju eftir umsóknum hjúkrunarfræðinga um styrki úr sjóðnum. Umsóknafrestur er til 1. febrúar 2011.

17.12.2010  //

Fíh semur um afslátt fyrir félagsmenn sína

tilefni af heilsuátaki Fíh hefur félagið samið við Heilsuborg um afslátt til félagsmanna. Heilsuborg býður upp á heildstæða þjónustu margra fagaðila á heilbrigðissviði sem vinna markvisst að því að bæta heilsu og líðan einstaklinga sem til þeirra leita

16.12.2010  //

Fíh veitir Heilsuhýsinu jólastyrk

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga sendir ekki út jólakort til vina og velunnara. Þess í stað er ákveðinni fjárhæð varið ár hvert til styrktar góðu málefni. Að þessu sinni hefur stjórn félagsins ákveðið að veita jólastyrknum í ár, kr. 200.000-, til Rauða kross Íslands með ósk um að fénu verði varið til reksturs Heilsuhýsisins.

15.12.2010  //

Tækifæri í heilsugæslunni

Undanfarna daga hefur mikil umræða verið í fjölmiðlum um tækifæri til eflingar heilsugæslunnar og samvinnu þeirra heilbrigðisstétta sem þar starfa. Fréttablaðið birti meðfylgjandi grein formanns Fíh um málið þann 10. desember. Í greininni kemur meðal annars fram það mat formannsins að ekki sé þörf á nýrri heilbrigðisstétt til starfa í heilsugæslunni. Einnig að það að sjúkdómsgreina sé ekki keppikefli hjúkrunarfræðinga.

14.12.2010  //

Fundur formanns Fíh með fjárlaganefnd Alþingis

Formaður Fíh fundaði í lok síðustu viku með fjárlaganefnd Alþingis vegna boðaðra breytinga á hagræðingaráformum í heilbrigðisþjónustu. Á fundinum varaði formaðurinn við þeim alvarlegu breytingum á hjúkrunarþjónustu á landsbyggðinni og þar með gæðum heilbrigðisþjónustu og öryggi sjúklinga, sem tillagðar breytingar munu leiða af sér.

14.12.2010  //

Tímarit hjúkrunarfræðinga komið út

Jólablaðið er nú komið út og verður því dreift á fimmtudag. Tölublaðið hefur verið aðgengilegt á vefnum í nokkurn tíma. Með blaðinu kemur dagbókin eins og venjulega en prentun hennar hefur dregist.

08.12.2010  //

Fundur stjórnar Fíh með heilbrigðisráðherra

Formaður Fíh og fimm fulltrúar úr stjórn félagsins hittu heilbrigðisráðherra og embættismenn í ráðuneytinu á fundi í morgun. Rætt var um niðurskurðinn sem framundan er og áhrif hans á heilbrigðisþjónustuna. Einnig var rætt um endurskipulagningu heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu og samstarf félagsins og ráðuneytisins.

06.12.2010  //

Framboð til formanns Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

Kjörnefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga auglýsir eftir framboði til formanns félagsins. Samkvæmt lögum félagsins skal formaður kjörinn til tveggja ára í senn með allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna það ár sem ber upp á oddatölu.

06.12.2010  //

Lokadagur umsókna og gagnaskila til Styrktar- og sjúkrasjóðs er 9. desember

Stjórn og Styrktar- og sjúkrasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga minnir á að lokadagur til að sækja um og skila gögnum vegna umsókna sem miðast við almanaksár er 9. desember n.k.

06.12.2010  //

Endurmenntun framlengir umsóknarfrest vegna tveggja námskeiða til 8. desember

Endurmenntun í samvinnu við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands hefur framlengt umsóknarfresti vegna tveggja námskeiða sem haldin verða á vorönn

03.12.2010  //

Grein um áhrif efnahagskreppunnar á hjúkrun og hjúkrunarfræðinga

Áhugi heilbrigðisstarfsmanna víða um heim á áhrifum efnahagskreppunnar hér á landi á heilbrigðisþjónustuna er mikill. Í nýjasta tölublaði The World Medical Journal er birt grein eftir Elsu B. Friðfinnsdóttur, formann Fíh og Jón Aðalbjörn Jónsson, alþjóðafulltrúa Fíh, sem fjallar um áhrif efnahagskreppunnar á hjúkrunarfræðinga og hjúkrun á Íslandi.

03.12.2010  //

Saga hjúkrunar á Íslandi á 20. öld tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna

Bók Margrétar Guðmundsdóttur, Saga hjúkrunar á Íslandi á 20. öld, sem gefin er út af Fíh er meðal 5 bóka sem tilnefndar hafa verið til íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðirita. Fíh óskar Margréti hjartanlega til hamingju með þennan frábæra árangur. Bókmenntaverðlaunin verða veitt í janúar 2011.

02.12.2010  //

Tillaga SÍ um uppsögn á samningi um sérhæfða heimahjúkrun barna

Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) hafa tilkynnt forsvarsmönnum Heilsueflingarmiðstöðvarinnar að lagt verði til við heilbrigðisráðherra að samningur SÍ við miðstöðina verði ekki framlengdur eftir 31. desember nk. Samanburður á kostnaði vegna legudaga á sjúkrahúsum og vegna heimahjúkrunar barnanna sýnir verulega hagkvæmni heimahjúkrunarinnar. Hver er þá ávinningurinn, ekki hvað síst í ljósi áherslna stjórnvalda á aukna heimahjúkrun?

02.12.2010  //

Desemberuppbót 2010

Desemberuppbót á árinu 2010 skv. kjarasamningum ríkis, sjálfseignarstofnana og Reykjavíkurborgar er kr. 44.100 Desemberuppbót á árinu 2010 skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga er 72,364 kr.

01.12.2010  //

Miklir vankantar á fyrirhugaðri sameiningu Landlæknisembættis og Lýðheilsustöðvar

Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur sent heilbrigðisnefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um sameiningu Landlæknisembættisins og Lýðheilsustöðvar.