Fréttasafn eftir mánuðum//
Hjúkrunarráð Sjúkrahússins á Akureyri skorar á velferðarráðherra og ríkisstjórnina
Hjúkrunarráð Sjúkrahússins á Akureyri hélt aðalfund sinn 27. október og á honum var mótmælt þeim niðurskurði sem krafist er af sjúkrahúsinu fyrir árið 2012. Lengra verður ekki gengið í hagræðingu og samkvæmt niðurskurðartillögum sem kynntar voru í fyrradag
Íslenski dansflokkurinn býður upp í dans
Íslenski dansflokkurinn vill bjóða félagsmönnum í Félagi Íslenskra Hjúkrunarfræðinga tvo miða á verði eins á sýninguna Fullkominn dagur til drauma. Tilboðið gildir á sýninguna sunnudaginn 6. nóvember kl 20.00. Sýningin er á Stóra sviði Borgarleikhússins.
Starfsmenntunarsjóður úthlutar rúmlega 10 milljónum til 290 félagsmanna
Í október úthlutaði stjórn starfsmenntunarsjóðs styrk til 290 félagsmanna vegna þátttöku í ráðstefnum og námskeiðum. Heildarfjárhæð styrkja nam yfir 10 milljónum króna, en hámarksupphæð styrkja er kr. 40.000 fyrir hvern og einn félagsmann innan almanaksársins.
Stjórn fagdeildar krabbameinshjúkrunarfræðinga lýsir áhyggjum vegna málefna líknardeildar
Stjórn fagdeildar krabbameinshjúkrunarfræðinga lýsir yfir áhyggjum af því að gerðar séu svo miklar kröfur til niðurskurðar á Landspítala að stjórnendur sjái sig nauðbeygða til að fækka legurýmum fyrir sjúklinga sem þurfa á líknarmeðferð að halda.
Ályktun á aðalfundi hjúkrunarráðs Landspítala – Nýr Landspítali
Hjúkrunarráð minnir á mikilvægi þess að nýr Landspítali verði byggður. Nýr Landspítali mun auka öryggi sjúklinga, bæta aðstöðu sjúklinga og starfsmanna og stuðla að hagræðingu í rekstri.
Þórsteinssjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki
Tilgangur Þórsteinssjóðs er í fyrsta lagi að styrkja blinda og sjónskerta stúdenta til náms við Háskóla Íslands. Í öðru lagi er markmið sjóðsins að efla rannsóknir sem aukið geta þekkingu á blindu og skertri sýn, einkum í félags- og hugvísindum.
Fagdeild Öldungadeildar Fíh mótmælir lokun líknardeildar Landakotsspítala
Mótmæli stjórnar Öldungadeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Aðalfundur hjúkrunarráðs Landspítala mótmælir niðurskurði og lokun á 22 legurýmum
Hjúkrunarráð Landspítala mótmælir harðlega þeim mikla niðurskurði til Landspítala sem fyrirhugaður er á fjárlögum næsta árs. Niðurskurðurinn mun hafa í för með sér skerðingu á þjónustu við sjúklinga, ennþá meira álag á starfsfólk og ógna öryggi sjúklinga. Hjúkrunarráð telur að fækkun á 22 legurýmum á Landspítala sé mjög varhugaverð.
Bráðahjálp fullorðinna
Námskeiðið Bráðahjálp fullorðinna verður endurtekið 12. nóvember n.k. Skráning er hafin á það námskeið. Enn eru laus sæti á námskeiðið sem haldið verður 5. nóvember.
Uppbókað á námskeiðið um sár og sárameðferð
Sáranámskeiðið sem haldið verður dagana 3. og 4. nóvember er uppbókað. Þeir einir sem greitt hafa þátttökugjaldið eru skráðir á námskeiðið. Námskeiðið verður endurtekið fljótlega eftir áramótin.
Fagdeild geðhjúkrunarfræðinga hefur lýst yfir stuðningi við flutning
Fagdeild geðhjúkrunarfræðinga hefur lýst yfir stuðningi við að starfsemi réttargeðdeildarinnar á Sogni verði færð á Kleppspítala í Reykjavík.
Ályktun stjórnar fagdeildar öldrunarhjúkrunarfræðinga í Fíh
Stjórn fagdeildar öldrunarhjúkrunarfræðinga harmar mjög fyrirhugaða lokun á líknardeild aldraðra á Landakoti, L-5. Umönnun við lífslok er flókin og viðkvæm.
Hætt við námskeið á Akureyri vegna dræmrar þátttöku
Námskeið um laun og kjör sem halda átti á Akureyri fimmtudaginn 13. október hefur verið fellt niður vegna dræmrar þátttöku.
Orlofshús óskast
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga óskar eftir að leigja nýleg, vel búin orlofshús víðs vegar um landið
Hjúkrun og fjölskyldur komin út hjá Háskólaútgáfunni
Hjúkrun og fjölskyldur er ein fyrsta bókin sem gefin er út um fjölskylduhjúkrun. Hún er samin fyrir hjúkrunarfræðinga og annað fagfólk sem sinnir fjölskyldum. Í bókinni er lögð áhersla á leiðbeiningar um mat og meðferð hjúkrunarfræðinga á fjölskyldum þeirra sem eiga við bráð veikindi að stríða
Samskiptanámskeið fyrir hjúkrunarfræðinga
Tveggja daga samskiptanámskeið fyrir hjúkrunarfræðinga hefst 26. október. Á námskeiðinu er lögð áhersla á grundvallaratriði í samskiptum við sjúklinga og aðstandendur þeirra.
Aukatölublað Tímarits hjúkrunarfræðinga komið á vefinn
Nýlega kom út aukatölublað Tímarits hjúkrunarfræðinga í tilefni ráðstefnunar Hjúkrun 2011. Í því er að finna 11 nýjar fræðigreinar. Þær voru allar skrifaðar upp úr erindum á ráðstefnunni. Tölublaðið var einungis prentað í 350 eintökum og dreift meðal ráðstefnugesta en allar greinarnar eru aðgengilegar á vef tímaritsins.
Fréttasafn
2013
2012
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2011
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2010
jan, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2009
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2008
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2007
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2006
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2005
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2004
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2003
feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
