Fréttasafn eftir mánuðum//

22.12.2011  //

Afgreiðsla skrifstofu er lokuð um hátíðirnar

Afgreiðsla skrifstofu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga er lokuð um hátíðirnar. Öllum tölvupósti er þó svarað og ef nauðsyn ber til er hægt að ná í formann félagsins í

20.12.2011  //

Skipað í undirbúningsnefnd að stofnun siðanefndar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

Framkvæmdaráð Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga samþykkti á fundi sínum þann 15. desember 2011 að skipa í undirbúningsnefnd til að stofna að nýju siðanefnd eða siðaráð Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

14.12.2011  //

Umsóknarfrestur í námskeiðið Forysta, kennsla og fræðsla framlengdur

Endurmenntun HÍ hefur framlengt umsóknarfrest í námskeiðið fram til 16. desember n.k

08.12.2011  //

Guðrún Marteinsson, fyrrverandi hjúkrunarforstjóri á Landakotsspítala lést á Droplaugarstöðum 29. nóvember 2011

Guðrún Marteinsson var sannur leiðtogi og brautryðjandi. Hún var ötull talsmaður hjúkrunar. Hjúkrunarfræðingar þökkuðu Guðrúnu fyrir brautryðjendastörf hennar í hjúkrun með því að gera hana að heiðursfélaga í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga vorið 2003

02.12.2011  //

Jólastyrkur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

Jólastyrkur félagsins í ár er veittur Vin, athvarfi fyrir geðfatlaða. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga sendir ekki út jólakort til vina og velunnara. Þess í stað er ákveðinni fjárhæð varið ár hvert til styrktar góðu málefni.

01.12.2011  //

Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins ekki lengur þátttakendi í verkefninu "Ágætis byrjun"

Félaginu hefur borist bréf frá framkvæmdastjóra hjúkrunar Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins þar sem segir að Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins sé ekki lengur þátttakandi í verkefninu "Ágætis byrjun" sem Umhverfisstofnun stendur fyrir.