Fréttasafn eftir mánuðum//

27.01.2012  //

Fagdeild heilsugæsluhjúkrunarfræðinga leggur áherslu á heilsueflandi aðgerðir

Stjórn Fagdeildar heilsugæsluhjúkrunarfræðinga hefur samþykkt að leggja áherslu á heilsueflandi aðgerðir til að hafa jákvæð áhrif á þróun samfélagsheilsu.

23.01.2012  //

Viðhorfskönnun framundan meðal félagsmanna

Frá því í haust hefur verið unnið að skipulagningu verkefnis sem miðar að því að gera þennan hluta af starfsemi félagsins jafnvel enn sterkari enn áður. Til að vinnan við verkefnið verði eins mikið í þágu hjúkrunarfræðinga og nokkur kostur er teljum við nauðsynlegt að kanna hug félagsmanna sjálfra til málefna sem varða kjör og aðra mikilvæga hagsmuni.

23.01.2012  //

Námskeiðið um sár og sárameðferð fullbókað

Í ráði er að bjóða upp á námskeiðið á Akureyri í maí ef næg þátttaka fæst.

18.01.2012  //

Bjarni Ingvarsson ráðinn umsjónarmaður orlofssjóðs

Bjarni Ingvarsson hefur verið ráðinn umsjónarmaður eigna orlofssjóðs félagsins í 30% starfi. Talsverður áhugi var á starfinu en 70 sóttu um. Hlutverk umsjónarmanns er að sjá um eftirlit og viðhald á eignum sjóðsins.

18.01.2012  //

Greiðslur félagsmanna til vinnudeilusjóðs Fíh

Á aðalfundi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 19. maí 2011 var samþykkt tillaga stjórnar vinnudeilusjóðs um að hefja að nýju innheimtu í sjóðinn. Samþykkt var að félagsmenn greiði 0,15% af dagvinnulaunum sínum í vinnudeilusjóð, til að styrkja félagsmenn í kjarabaráttu ef til verkfallsaðgerða kæmi.

16.01.2012  //

Námskeiðinu um réttindi sjúklinga frestað til 2. mars 2012.

Námskeiðinu um réttindi sjúklinga sem vera átti föstudaginn 20. janúar hefur verið frestað. Það verður haldið föstudaginn 2. mars kl. 9:00-15:00 að Suðurlandsbraut 22. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Margrét Tómasdóttir hjúkrunarfræðingur MSN, ML.

13.01.2012  //

Hyggst þú sækja um styrk í B-hluta Vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga?

Stjórn Vísindasjóðs Fíh heldur fræðslufundi á Akureyri og í Reykjavík fyrir hjúkrunarfræðinga sem hyggjast sækja um styrk í sjóðinn og leiðbeinendur þeirra. Umsóknarfrestur í B-hluta Vísindasjóð er til 15. mars 2012.

12.01.2012  //

Vilt þú verða álitsgjafi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga?

Fagsvið Fíh auglýsir eftir sérfræðingum í hjúkrun sem vilja gefa kost á sér til álitsgjafa fyrir hönd félagsins.

05.01.2012  //

Samskiptanámskeið á Akureyri fellt niður

Hætt hefur verið við að halda samskiptanámskeiðið Traust-hugrekki-nærvera-ábyrgð á Akureyri í janúar vegna ónógrar þátttöku.

05.01.2012  //

Hjúkrunarfræðingur á bráðadeild Landspítalans gekk 12 kílómetra á einni vakt

Skrefamælir sýndi að hjúkrunarfræðingur á bráðadeild Landspítalans gekk 12 kílómetra á einni erilsamri vakt í haust. Mælingin verður endurtekin en hjúkrunarfræðingar vita að þeir þurfa að ganga mikið, enda deildin stór og starfið erilsamt

02.01.2012  //

Fjölbreytt námskeið á vorönn

Hjúkrunarfræðingar í samvinnu við Fíh bjóða upp á fjölbreytt námskeið á vorönn. Um er að ræða bæði ný og endurtekin námskeið frá haustönn. Skráning er hafin á námskeiðin. Nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna undir Fagsvið → Námskeiðaskrá