Fréttasafn eftir mánuðum//

29.02.2012  //

Orlofsíbúð á Akureyri 4. til 6. apríl nk.

Orlofsíbúðin á Kjarnagötu, Akureyri

29.02.2012  //

Námskeiðið sár og sárameðferð á Akureyri 4.og 5. maí

Ljóst er að námskeiðið verður haldið á Akureyri þar sem þátttaka er mikil.

27.02.2012  //

Oddný Sigurborg Gunnarsdóttir varði doktorsritgerð sína

Ritgerðin byggir á fimm birtum greinum og helstu niðurstöður að árleg aukning í komu sjúklinga á bráðamóttökuna var umfram mannfjöldaaukningu á Stór- Reykjavíkursvæðinu á tímabilinu. Einkenna sjúkdómsgreining var algengasta greiningin á þeim tíma sem var til skoðunar í rannsókninni.

21.02.2012  //

Danmörk - Alþjóðlegur hópur sérfræðinga: " hámark 2 næturvaktir í röð"

Hópur 12 alþjóðlegra sérfræðinga sem settur var á fót af félagi hjúkrunarfræðinga í Danmörku (DSR), danska krabbameinsfélaginu (Kræftens bekæmpelse) og dönsku stjórnsýslusvæðunum (danske regioner) til að koma með tillögur um hvernig best er að fyrirbyggja brjóstakrabbamein af völdum næturvinnu hefur nú komið með sínar fyrstu tillögur. Hópurinn mælir m.a. með því að starfsfólk vinni ekki fleiri en 1-2 næturvaktir í einu.

21.02.2012  //

Tímarit hjúkrunarfræðinga komið út

Nýtt tölublað Tímarits hjúkrunarfræðinga er komið á vefinn. Það verður borið í hús á næstu dögum.

21.02.2012  //

Lokadagur umsókna í B-hluta Vísindasjóðs er 15. mars 2012

Umsókn og fylgiskjöl skulu berast rafrænt á netfangið visindasjodur@hjukrun.is fyrir miðnætti þann 15. mars 2012.

17.02.2012  //

Styrkur A-hluta vísindasjóðs

Styrkir úr A-hluta vísindasjóðs hafa verið greiddir út til hjúkrunarfræðinga, en að þessu sinni fengu hátt í 2800 félagsmenn yfir 125 milljónir króna samtals í styrki. Styrkirnir voru lagðir inn á bankareikninga sem hjúkrunarfræðingar gáfu sjálfir upp.

15.02.2012  //

Gunnur nýr framkvæmdastjóri Vistor

Gunnur Helgadóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Vistor hf. Hún var áður markaðsstjóri og hefur einnig viðtæka starfsreynslu sem hjúkrunarfræðingur.

15.02.2012  //

Evrópudagur skurðhjúkrunar

15. febrúar er Evrópudagur skurðhjúkrunar. Þema dagsins núna er "Promoting a positive environment", sem má útleggjast sem "Stuðlað að jákvæðu umhverfi". Stjórn fagdeildarinnar hvetur skurðhjúkrunarfræðinga til að halda daginn hátíðlegan á vinnustöðum sínum og halda þema dagsins á lofti

10.02.2012  //

Fundur um tap lífeyrissjóðanna

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga boðar til fundar um niðurstöður skýrslunnar um fjárfestingar lífeyrissjóða. Fundurinn verður þriðjudaginn 21. febrúar kl. 15:00 á Grand hóteli í Reykjavík.

10.02.2012  //

Gjafabréf flugfélaganna komin

Gjafabréf Icelandair og Iceland Express eru komin á vefinn.

06.02.2012  //

Námskeiðið um sár og sárameðferð á Akureyri

Hið geysivinsæla námskeið um sár og sárameðferð verður haldið á Akureyri dagana 4. og 5. maí n.k. ef næg þátttaka fæst. Hjúkrunarfræðingum, sem eru á biðlista á námskeiðið í Reykjavík í febrúar, er bent á námskeiðið á Akureyri.

02.02.2012  //

Varði doktorsverkefni um gæði umönnunar, þróun heilsufars, færni og lifun á hjúkrunarheimilum

"Gæði umönnunar, þróun á heilsufari, færni og lifun á íslenskum hjúkrunarheimilum á árunum 1996-2009" er yfirskrift doktorsverkefnis sem Ingibjörg Hjaltadóttir, hjúkrunarfræðingur á lyflækningasviði Landspítala, varði við heilbrigðisvísindadeild læknadeildar Háskólans í Lundi föstudaginn 27. janúar 2012.

01.02.2012  //

Námskeið - Öryggi í öndvegi

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga í samvinnu við Sparnað ehf. býður öllum félagsmönnum sínum á námskeið með Ingólfi H. Ingólfssyni. Á námskeiðinu mun Ingólfur H. kynna ákveðna hugmyndafræði í fjármálum sem hann hefur verið að boða á undanförnum árum.