Fréttsafn eftir árum//
Oxford Health Alliances gefa út skýrslu um áhrif langvinnra sjúkdóma á efnahag þjóða
Í skýrslunni sem ber heitið Chronic Diseases: An Economic Perspective er sýnt fram á neikvæð efnahagsleg áhrif langvinnra sjúkdóma og ríkisstjórnir hvattar til að bregðast við með því að gera fyrirbyggingu slíkra sjúkdóma að forgangsmáli.
Launataxtar ríkisins hækka um 2,9% 1. janúar 2007
Allir almennir kjarasamningar ríkisins við félög opinberra starfsmanna, félög innan ASÍ og fleiri, hækka um 2,90% þann 1. janúar 2007 í stað 2,25% samkvæmt kjarasamningum.
Landspítali háskólasjúkrahús sýknað af kröfu um ógildingu uppsagnar
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Landspítala-háskólasjúkrahús af kröfu starfsmanns Landspítala-háskólasjúkrahúss um að ógilt verði með dómi ákvörðun spítalans að segja sér upp störfum í september sl. LSH var jafnframt sýknaður af kröfu mannsins um að viðurkennt yrði með dómi, að uppsögnin hafi verið ólögmæt.
Mótframlag launagreiðanda hækkar úr 6% í 8% frá 1. janúar 2007
Á Alþingi voru samþykkt lög þann 9. desember sl. þar sem nokkrar breytingar voru gerðar á lögum er varða greiðslu iðgjalda í lífeyrissjóði.
Útskrifa þarf 130-140 hjúkrunarfræðinga árlega
Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra kynnti í dag fyrstu mannaflaspá í heilbrigðisþjónustunni sem unnin hefur verið af Hagfræðistofnun. Samkvæmt henni þarf að útskrifa 130-140 hjúkrunarfræðinga árlega næstu árin til að mæta brýnni hjúkrunarþörf
Samgönguráðuneytið gaf í dag út á vefsvæði sínu lokaskýrslu um áhrif höfuðborgarsvæðisins og ferðavenjur
Athyglisvert er að skoða þann kafla skýrslunnar er snýr að heilbrigðisþjónustu en skv skýrslunni sækir landsbyggðarfólk um 52% sérfræðilæknisþjónustu til höfuðborgarsvæðisins, 25% í næsta héraðs- eða landshlutakjarna og 23% til næsta þéttbýliskjarna
Nýtt met í blóðgjöf í Blóðbankanum
Guðbjörn Magnússon kom til að gefa blóð í 150. skipti.
Grund óskar eftir lögreglurannsókn vegna tímaritsgreinar
Stjórn dvalar- og hjúkrunarheimilisins Grundar hefur óskað eftir því að lögreglan í Reykjavík rannsaki hvort blaðamaður tímaritsins Ísafoldar hafi brotið lög með grein sinni sem bar yfirskriftina Endastöðin.
Alþjóða mannréttindadagurinn 10 desember
www.hjukrun.is vakti sérstaka athygli á málefninu með toppmynd tileinkaðri deginum, auk krækju á mannréttindasíðu Sameinuðu þjóðanna
Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp félagsmálaráðherra um erlenda starfsmenn og starfsmannaleigur
Ríkisstjórnin samþykkti í dag frumvarp Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands og starfskjör starfsmanna þeirra. Betri upplýsingar um kjör erlendra hjúkrunarfræðinga sem starfa hjá starfsmannaleigum gætu falist í frumvarpinu.
Jólablað Tímarits hjúkrunarfræðinga er komið á vefinn
Jólablað Tímarits hjúkrunarfræðinga er komið á heimasíðuna eins og sjá má hér til hliðar. Meðal efnis að þessu sinni eru 4 fræðslugreinar, sagt frá hjúkrunarþingi 2006 og ýmislegt fleira.
Aljóðleg miðstöð fyrir mannauð í hjúkrun opnar
The Internationale Centre for Human Resorces in Nursing (ICHRN). Hér geta félagasamtök, stjórnmálamenn og aðrir fundið úrræði við lausnir á vandamálum sem tengjast mannauð í hjúkrun.
18,8% reykja daglega nú en 30% árið 1991
Samkvæmt könnun sem Capacent Gallup vann fyrir Lýðheilsustöð á árinu 2006.
Rauði krossinn og Rauði hálfmáninn hafa áhyggjur af aukningu alnæmissmits meðal kvenna
Í yfirlýsingu Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans í tilefni af alþjóðlega alnæmisdeginum 1. desember segir að samtökin hafi vaxandi áhyggjur af aukningu á alnæmissmiti kvenna og stúlkna um allan heim.
Matsnefnd leggur til að auglýst verði aftur eftir framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga
Matsnefnd hefur lagt til, að auglýst verði að nýju eftir framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga en starf framkvæmdastjóra stofnunarinnar var auglýst laust til umsóknar í október sl.
Skattur af geisladiskum og gosdrykkjum lækkar en ekki af lyfjum!
Frumtök, samtök framleiðenda frumlyfja þykir skjóta skökku við að gosdrykkir og geisladiskar njóti lækkunar virðisaukaskatts en ekki lyf, sem bera 24,5% vsk
Miðstöð Mæðraverndar lögð niður
Skorað var á heilbrigðisráðherra á Alþingi í gær að endurskoða ákvörðun um að leggja niður miðstöð Mæðraverndar. Húsnæði Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg hefur verið selt en þar var Mæðravernd þar til í dag.
Vátryggingafélög fái upplýsingar um heilsufar ættingja
Í frumvarpi sem viðskiptaráðherra, Jón Sigurðsson, hefur lagt fram á Alþingi er lagt til að vátryggingafélagi verði heimilt að afla upplýsinga um þá sjúkdóma sem vátryggingartaki eða vátryggður, svo og foreldrar, systkini og börn vátryggðs eru haldin eða hafa haft.
Ferðakostnaðarnefnd hefur gefið út auglýsingu
Akstursgjald ríkisstarfsmanna og dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum erlendis taka breytingum þann 1. des 2006
Minnst 650 einstaklingar bíða eftir gerviliðaaðgerðum
Biðlistar eftir gerviliðaaðgerðum hafa lengst jafnt og þétt að undanförnu. Minnst 650 einstaklingar bíða eftir slíkri aðgerð á Landspítalanum, Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og sjúkrahúsinu á Akranesi.
Ráðstefna SSN um skráningu í hjúkrun haldin í Helsinki Finnlandi 11.-13.október 2006
Ingibjörg Sigmundsdóttir sótti ráðstefnu SSN um skráningu í hjúkrun og hvetur til frekari þátttöku Fíh í stefnumótunarvinnu og þróun á skráningum í hjúkrun.
TimesOnline orðar Baug Group við spítalakaup
Á fréttavefnum TimesOnline er Baugur ásamt fleirum orðaður við hugsanleg kaup á 21 einkareknum spítala í Bretlandi.
Samstarf um rannsóknir á fötlun og þroskafrávikum
Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra, Stefán J. Hreiðarsson, forstöðumaður Greiningar- og ráðgjafastöðvar ríkisins, og Kristín Ingólfsdóttir háskólarektor undirrituðu í dag samstarfssamning sem Greiningar- og ráðgjafarstöðin og Háskóli Íslands hafa gert með sér um kennslu og rannsóknir á fötlun og þroskafrávikum
Umsóknarfrestur vegna almanaksársbundinna styrkja
Styrktar og sjúkrasjóður BHM minnir á að umsóknarfrestur vegna almanaksársbundinna styrkja rennur út 9. desember n.k.
Aðalfundur fagdeildar heilsugæsluhjúkrunarfræðinga
Fagdeild heilsugæsluhjúkrunarfræðinga boðar til aðalfundar þann 23. nóvember, í húsnæði Icepharma Lynghálsi 13
Ný vefslóð www.hjarta.net
Björn Ófeigsson heldur úti upplýsingavef um hjartasjúkdóma, tengla sem tengjast hjartasjúkdómum, hjartasjúklingum og aðstandum þeirra.
Nefndir fá sérstakt vefsvæði á www.hjukrun.is
Í dag var opnað nýtt svæði hér á vef félagsins, sem inniheldur upplýsingar um skipan og starf fastra nefnda félagsins
Mannauður í hjúkrun
Hjúkrunarþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga var haldið 2. og 3. nóvember sl.
Ályktun frá Fagdeild heilsugæsluhjúkrunarfræðinga
Stjórn Fagdeildar heilsugæsluhjúkrunarfræðinga harmar þá ákvörðun að leggja núverandi starfsemi Miðstöðvar mæðraverndar niður.
Fréttir frá aðalfundi EFN
Dagan 26. og 27. október var haldin aðalfundur Evrópusamtaka hjúkrunarfræðinga. Aðalfundir EFN eru haldnir tvisvar sinnum á ári og er þá farið yfir mál er varða hagsmuni hjúkrunarfræðinga og heilbriðisþjónustunnar í Evrópu.
Aðalfundur Fagdeildar taugahjúkrunarfræðinga 2006
Aðalfundur Fagdeildar taugahjúkrunarfræðinga verður haldinn fimmtudaginn 23. nóvember kl. 19.00 í fundarsal Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Ung kona lést af notkun e-taflna um helgina
Lögreglan í Reykjavík varar við E-töflum, en aðfaranótt sunnudags lést ung kona sem hafði tekið inn E-töflu.
Ályktun um fjölgun hjúkrunarfræðinema frá Hjúkrunarþingi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 2.-3. nóvember 2006
Hjúkrunarþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga haldið 2.-3. nóvember 2006 áréttar mikilvægi þess að fjölga hjúkrunarfræðingum. Mikilvæg samfélagsleg þörf er til staðar fyrir fjölgun á hjúkrunarfræðingum ekki síst á höfuðborgarsvæðinu.
Lokun skrifstofu vegna Hjúkrunarþings 2006
Skrifstofa félagsins verður lokuð föstudaginn 3. nóvember. Hægt er að ná í starfsfólk skrifstofu í síma 896 4868 og 861 2956
Ályktun FSHA (félag stúdenta við Háskólann á Akureyri) og Eir (Félag stúdenta við heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri)
Landsbyggðarmismunum ríkisvaldsins
Deildarfundur í hjúkrunarfræðideild HÍ hefur sent frá sér ályktun
Deildarfundurinn setur fram kröfu um að samhliða aukningu á fjölda nemenda verði flokkun hjúkrunar i reiknilíkani menntamálaráðuneytisins leiðréttur
Ályktun stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga vegna fjölgunar nema í hjúkrunarfræði
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga samþykkti á fundi sínum þann 30. október 2006 ályktun um fjölgun nema í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands
Yfirlýsing samstarfsnefndar aðildarfélaga BHM og LSH
Aðilarnir hafa unnið á mati á svigrúmi vegna bókunar um hækkunarferli
Vefkönnun um starfshlutfall ef grunnlaun væru hækkuð um 30.000, er lokið
Rétt rúmur helmingur svarar vefspurningunni játandi og mundi samkvæmt því vera í 90-100% starfi ef grunnlaun yrðu hækkuð um 30.000,00 kr.
Ályktun frá Ljósmæðrafélagi Íslands og Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
Ljósmæðrafélag Íslands og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga mótmæla harðlega niðurlagningu áhættumeðgönguvernd á vegum Miðstöðvar mæðraverndar sem rekin er af Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Fulltrúar Fíh sækja fund EFN (European Federation of Nurse Associations)
Dagana 26. og 27. október verður aðalfundur EFN haldinn á Madeira.
Hjúkrunarnemum við Háskóla Íslands fjölgar um 25 á ári næstu ár
Í frumvarpi til fjáraukalaga er lagt til að veitt verði 9,1 m.kr. framlag til að fjölga nemendum í hjúkrunarfræði
Alnæmissamtökin fræða unglinga í vetur
Alnæmissamtökin hefja nú um mánaðamótin fræðslu- og forvarnarátak sem beinist að 9. og 10. bekkingum í öllum grunnskólum landsins.
Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands breyttir frá og með 1. nóvember
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins
Starfsumhverfi ríkisstarfsmanna kortlagt
Í nóvember 2006 fer fram viðamikil könnun á starfsumhverfi ríkisstarfsmanna þar sem spurt verður um atriði er varða starfsánægju, starfsþróun, vinnuaðstöðu o.þ.h.
Yfirlýsing frá HÍ og LSH vegna fjölgunar hjúkrunarfræðinema
Háskóli Íslands og Landspítali - háskólasjúkrahús fagna þeirri ákvörðun heilbrigðisráðherra og menntamálaráðherra sem gerði þeim kleift að samþykkja fjölgun hjúkrunarfræðinema
Áríðandi tilkynning frá styrktar- og sjúkrasjóði BHM
Athygli er vakin á því að tilteknir styrkir eru háðir útgreiðslu pr. almanaksár, þ.e. sé ekki sótt um viðkomandi
Fagdeild barnahjúkrunarfræðinga boðar til aðalfundar
Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 31. október 2006 kl. 18:00-20:00 í fundarsal Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Vefur mánaðarins
Vefur mánaðarins hefur verið valinn og er hann að þessu sinni undirvefur á vef Lýðheilsustöðvar.
Niðurstöður könnunar á ofbeldi gagnvart félagsmönnum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Í kjölfar aukinnar umræðu um ofbeldi gagnvart heilbrigðisstarfsfólki gerði Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga könnun á ofbeldi gagnvart félagsmönnum, tíðni þess og hvers eðlis ofbeldið er. Könnunin fór fram dagana 8.-23. september s.l. á heimasíðu félagsins og gátu allir hjúkrunarfræðingar tekið þátt í henni.
Enski hluti heimasíðu uppfærður
Nú hefur enski hluti heimasíðu Fíh verið uppfærður. Uppfærsla síðunar er liður í að efla þjónustu við erlenda hjúkrunarfræðinga sem starfa á Íslandi.
Skráning hafin á hjúkrunarþingið - Mannauður í hjúkrun
Skráning er hafin á hjúkrunarþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Mannauður í hjúkrun, sem haldið verður á hótel Loftleiðum, 2.-3. nóvember n.k.
Könnun á ofbeldi gagnvart hjúkrunarfræðingum
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur á undanförnum dögum verið að kanna ofbeldi gagnvart félagsmönnum sínum með könnun þar að lútandi á heimsíðu sinni.
Nýr fjármálastjóri
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur nú gengið frá ráðningu Sólveigar Stefánsdóttur í 50% starf fjármálastjóra félagsins og hefur hún þegar hafið störf.
Leiðbeiningar til að fyrirbyggja mismunun gefnar úr af Dansk sygeplejeråd
Félag danskra hjúkrunarfræðinga hefur gefið út bækling með leiðbeiningum um hvernig koma má í veg fyrir mismunun á vinnustað. Það er stefna danska félagsins að í heilbrigðiskerfinu sé pláss fyrir alla og því ekki hægt að líða mismunun sökum ólíks menningarlegs bakgrunnar, kynþáttar, húðlits, trúarbragða og fleira
Félagsráðsfundur
Félagsráðsfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður haldin 13. október 2006. Þar verður m.a. tekin upp umræða um styrki til deilda félagsins.
Hjúkrunarnám í Færeyjum
Í febrúar 2003 var hjúkrunarnámi í Færeyjum breytt í fjögurra ára BS´c nám. Fyrstu nemarnir með BS gráðu útskrifast því í febrúar 2007.
Þrjár ungar konur, þar af 2 hjúkrunarfræðingar eru skráðar í hina virtu AVON WALK FOR BREAST CANCER göngu
Samkvæmt því sem þær stöllur vita best eru þær fyrstu íslensku brjóstakrabbameinskonurnar sem fara í þessa göngu og kjörorð þeirra eru er '' VIÐ GÖNGUM ÁFRAM ''
Þriðji hver gjörgæslusjúklingur á Ullevål háskólasjúkrahúsinu í Oslo smitast af sýkingum á meðan á innlögn stendur
Vöntun á hjúkrunarfræðingum veldur því að margir ónæmisbældir sjúklingar þurfa að deila stofum, sem aftur eykur verulega hættuna á smiti.
Norrænt brjóstakrabbameinsþing í Borgarnesi
þrír íslenskir hjúkrunarfræðingar ganga 35 kílómetra áheitagöngu til stuðnings Samhjálp kvenna. Vefsvæði þeirra er vefur septembermánaðar hér á www.hjukrun.is
Reynsla hjúkrunarfræðinga af öryggi á vinnustað;
þriðjudaginn 12. september 2006, kl. 12:10-12:50 í stofu 201 á 2. hæð í Eirbergi, Eiríksgötu 34 málstofan er öllum opin
Könnun á ofbeldi gagnvart félagsmönnum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Í kjölfar aukinnar umræðu um ofbeldi gagnvart heilbrigðisstarfsfólki hefur Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga ákveðið að gera könnun til að afla upplýsinga um tíðni ofbeldis sem félagsmenn verða fyrir svo og hvers eðlis ofbeldið er.
Golfmót hjúkrunarfræðinga var haldið föstudaginn 1.sept. s.l. á golfvellinum í Þorlákshöfn.
20 hjúkrunarfræðingar voru mættir ásamt 7 mökum. Veðrið lék við þá og var mótið vel heppnað í alla staði.
Stjórnarfundur SSN í Noregi
Dagana 28 - 30 ágúst var haldin stjórnarfundur SSN (sygeplejernes samarbeit i Norden).
477 milljóna halli á rekstri Landspítalans
Segja forsvarsmenn LSH að greiðslustaða sjúkrahússins sé mjög erfið, sem m.a. stafi af fjárbindingu í viðskiptakröfum.
Fjármálstjóri 50% starf
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga leitar eftir fjármálastjóra sem hefur umsjón með fjárreiðum og fjárstýringu félagsins
Formaður Fíh í námsleyfi
Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Elsa B. Friðfinnsdóttir, verður í námsleyfi frá 1. september til 31. desember 2006. Halla Grétarsdóttir, 1. varaformaður félagsins mun gegna störfum formanns þann tíma.
Vefur mánaðarins kynntur
Sú nýjung hefur verið tekin upp hér á vefsvæðinu að vekja athygli á vefsvæðumi sem sérstaklega taka á heilbrigðismálum. Vefur mánaðarins að þessu sinni er www.bas.is
Unnið að gerð nýs launamyndunarkerfis með Reykjavíkurborg
Kerfið á að taka gildi eigi síðar en 1. september 2006 skv. kjarasamningi Fíh og Reykjavíkurborgar
Breytingar á starfsmannamálum á skrifstofu Fíh
Ingunn Sigurgeirsdóttir hefur látið af störfum fjármálastjóra. Auglýst verður eftir nýjum fjármálastjóra til félagsins í 50% starf.
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja ásamt Landlækni til starfa í Malaví
Sigríður Snæbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, og Sigurður Guðmundsson, landlæknir, halda í október til ársdvalar í Malaví.
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga samþykkti nýverið eftirfarandi ályktun
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) fagnar áherslum Sivjar Friðleifsdóttur, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra í öldrunarmálum og áherslu ráðherra á fjölgun námsplássa í hjúkrunarfræði
Golfmót hjúkrunarfræðinga
Golfmót hjúkrunarfræðinga verður haldið á Golfvellinum í Þorlákshöfn föstudaginn 1. september 2006 kl. 13:00
Ný þjónusta fyrir fagdeildir félagsins
Nálahaldarinn, fréttabréf fagdeildar skurðhjúkrunarfræðinga var í dag sent félögum fagdeildarinnar á rafrænu formi með póstþjóni vefumsjónar.
Hjúkrunarfræðinemar vilja sterkari stöðu - Ásrún Ösp Jónsdóttir kjörinn varaformaður
Nemar frá 12 evrópulöndum auk Kanada höfðu valið að eyða fimm heitum júlídögum saman í Kaupmannahöfn. Eitt af mest áríðandi efnunum á dagskrá fundarins var framtíð samtakanna.
Fölsuð lyf herja á vanþróuð lönd
Alþjóðaheilbrigðisstofnuin, WHO, metur það nú svo að fölsuð lyf séu meira en 10% af allri lyfjasölu heimsins - Fátækir sjúkilingar láta oft lífið þegar þeir sem á bak við standa senda fölsuð lyf í umferð
Vefslóðir www.hjukrun.is
Hálfsárs yfirferð á vefslóðum sem vísað er til á www.hjukrun.is er lokið. Vísað er á yfir 150 vefi sem tengjast hjúkrun eða heilsufari
Læknafélag Íslands gefur frá sér yfirlýsingu vegna ummæla yfirstjórnenda LSH
Í yfirlýsingunni segir m.a. að Læknafélag Íslands deili ekki um lögmæti stefnumörkunar LSH og um gildi hennar fyrir starfsmenn sem ráðnir eru eftir þá stefnumörkun. Félagið fer hins vegar fram á að þegar gerðar eru breytingar á störfum lækna, vegna þessarar stefnumörkunar, þá sé það gert í samráði við starfsmenn, í samræmi við lög og í samræmi við gerða samninga þegar um þá er að ræða.
Landspítali háskólasjúkrahús hefur látið vinna skýrslu um beinan og óbeinan kostnað vegna menntunar- og vísindastarfa
Í skýrslunni eru notuð eru erlend viðmið til þess að áætla aukinn rekstrarkostnað sjúkrahúss eins og Landspítala þar sem um er að ræða forystustofnun í kennslu, vísindum og þjónustu. Vitnað er til alþjóðlegrar umfjöllunar við slíkar aðstæður. LSH telur að gagnasöfnunin eigi eftir að nýtast til frekari skoðunar og samanburðar við erlendar stofnanir og sem grunnur við kostnaðaráætlanir og sérstaka nálgun er varðar greiðslufyrirkomulag
3L EXPO er stórsýning um heilsu og vellíðan
Verður haldinn í Egilshöll 7.-11. september n.k.
Hjúkrunarþing 2.-3. nóvember 2006
Hjúkrunarþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður haldið á hótel Loftleiðum dagana 2.og 3. nóvember n.k.
Úthlutun úr Starfsmenntunarsjóði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Eins og áður hefur komið frram á þessari síðu versnað fjárhagsstaða starfsmenntunarsjóðs Fíh á síðasta ári og hefði hann stefnt í þrot ef ekki hefði verið brugðist við. Viðbrögðin fólust í því að lægri styrkurinn var lækkaður úr 50.000 kr. í 40.000 kr.
Alþjóðadagur flóttamanna er í dag
Dagurinn er virðingarvottur við óþreytandi hug og þor flóttamanna heimsins, og sem slíkur ætti hann að vera hátíð
Til hamingju með daginn konur - Kvenréttindadagurinn er í dag
Bleikur litur prýðir vef félagsins í tilefni kvenréttindadagsins þann 19. júní 2006 eins og fyrri ár.
Nýtt ráðstefnu- og námskeiðaskráningarkerfi tekið í notkun á www.hjukrun.is
Ráðstefna Svæfinga- og Skurðhjúkrunarfræðinga er fyrsta ráðstefnan sem hægt er að skrá sig á í gegn um skráningarkerfið.
www.hjukrun.is er nú öryggisvottaður
Fíh hefur nú gert samning við Thawte um vottun á öryggi vefsvæðis félagsins. Meginmarkmiðið að tryggja að upplýsingar sem félagsmenn senda gagnvirkt um vefinn sé tryggðar og komist ekki í hendur annarra en þeim er ætlað.
Opnunartími skrifstofu í sumar
Skrifstofa félagsins verður opin í júní, júlí og ágúst frá kl. 9:00 til 16:00 alla virka daga.
Alþjóða blóðgjafadagurinn er í dag
14. Júní er ekki ætlað að koma í stað blóðgjafadaga einstakra þjóða, heldur gefa heiminum sérstakt tilefni til að halda upp á dag sem á sér einstaka merkingu: fæðingardag Nóbelverðlaunahafans Karl Landsteiner, sem uppgötvaði ABO blóðflokkakerfið.
Nýútkomin bók
Á næstunni er væntanleg útkoma bókarinnar: Frá innsæi til inngripa: þekkingarþróun í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði.
Golfmót hjúkrunarfræðinga sem haldið var 9. júní 2006
Golfmót hjúkrunarfræðinga var haldið í blíðskaparverði föstudaginn 9. júní sl.á Bakkakotsvelli. 36 manns mættu til leiks þar af 4 makar. Keppnin tókst vel og var keppnin hörð. Úrslit urðu þessi:
Meðalmánaðargreiðsla danskra sjúkrahúsa árið 2001 fyrir starf eins leiguliða frá starfsmannaleigu nam 759.816 ISK - 1.002.535 ISK, að því gefnu að unnar stundir væru 173
Samkvæmt sameiginlegri skýrslu Amtsrådsforeningen, Hovedstadens Sygehusfællesskab og Dansk sygepljeråd frá því í nóvember 2001 var kostnaður á hvern keyptan tíma á bilinu 4.392 ISK - 5.795 ISK þar með talið m.a. stjórnunarkostnaður, hagnaður, söluskattur
Fjölmennur fundur hjúkrunarfræðinga
Um 200 hjúkrunarfræðingar af Landspítala háskólasjúkrahúsi sóttu fund Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í gær.
Alþjóða reyklausi dagurinn
Miðvikudagurinn 31. maí er árlegur alþjóða dagur án tóbaks. Í ár er lögð áhersla á að hvetja fólk til að nota tækifærið og hætta að nota tóbak.
Endurskoðaðar starfsreglur fagdeilda
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga samþykkti á fundi sínum mánudaginn 29. maí 2006 endurskoðaðar starfsreglur fagdeilda félagsins. Eldri starfsreglur voru samþykktar af stjórn 2. maí 1994 og höfðu ekki verið endurskoðaðar síðan
Fundur með erlendum hjúkrunarfræðingum starfandi á Íslandi
Þriðjudaginn 30. maí klukkan 14 í húsnæði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga að Suðurlandsbraut 22.
Yfirlýsing stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) harmar viðbrögð stjórnenda Landspítala - háskólasjúkrahúss (LSH) við upplýsingum þeim er félagið hefur undir höndum og hefur látið félagsmönnum sínum í té um ráðningarkjör hjúkrunarfræðinga dönsku starfsmannaleigunnar Ethnic Care, sem um þessar mundir auglýsir eftir starfsmönnum til starfa á LSH.
Stjórn Fíh mun setja frá sér yfirlýsingu vegna fréttamannafundar LSH
Stjórn mun í dag fara yfir yfirlýsingu sem LSH sendi frá sér í gær, þar sem alvarlega er vegið að persónu formanns félagsins.
Ennþá eru nokkrar vikur lausar í orlofshús í sumar
Á orlofsvefnum eru nokkrar lausar vikur til útleigu í sumar. Farið er inn á orlofsvefinn -> sjálfsafgreiðsla og skrá sig þar inn á vefinn. Inn á liðnum lausar vikur er listi yfir lausar vikur. Fyrstur pantar - fyrstur fær.
Samantekt Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) vegna samnings Landspítala háskólasjúkrahúss (LSH) við starfsmannaleigu um komu danskra hjúkrunarfræðinga á LSH.
Gögn um launakjör danskra hjúkrunarfræðinga voru lögð fyrir fréttamenn á blaðamannafundi sem haldinn er í húsi Fíh um þessar mundir. Launamunur fyrir mánaðarstarf um 60%
Unnið að útreikningum á launum hjúkrunarfræðinga danskrar starfsmannaleigu - Boðað hefur verið til blaðamannafundar kl 16.00 ídag
Ljóst er af kjarasamningi starfsmannaleigunnar við Dansk sygeplejeråd að hjúkrunarfræðingarnir munu njóta kjara sem ekki þekkjast meðal íslenskra hjúkrunarfræðinga við LSH
Árangur ekki síst að þakka samstarfi bæði í réttindamálum og kjarasamningum
´"Réttindi á borð við orlof, veikindarétt, tryggingar og fæðingarorlof svo eitthvað sé nefnt eru alls ekki sjálfgefin eins og þeir sem starfa hjá ríkisstofnunum sem breytt er í hlutafélög eru fljótir að komast að raun um, sagði Halldóra Friðjónsdóttir, formaður BHM, m.a. við setningu aðalfundar bandalagsins í dag.
Vefkönnun um yfitlit um skil á lífeyrissjóðsgreiðslum er nú lokið
Athygli vekur að rúm 40% svarenda segjast ekki hafa fengið sent yfirlit yfir skil á greiðslum sínum í lífeyrissjóð
Ályktun frá fundi hjúkrunarfræðinga 12. maí 2006
Á fjölmennum fundi hjúkrunarfræðinga sem haldinn var á Alþjóðadegi hjúkrunarfræðinga 12. maí 2006 var samþykkt ályktun þar sem hjúkrunarfræðingar hvetja stjórnvöld og heilbrigðisstofnanir til að tryggja öryggi sjúklinga með góðri mönnun hjúkrunarfræðinga og spara þannig fjármuni og vernda líf
Ógerlegt að veita bráðveikum sjúklingum mannsæmandi þjónustu á LSH
Á fundi hátt á þriðja hundrað stjórnenda Landspítala - Háskólasjúkrahúss í gær var samþykkt ályktun þar sem segir m.a., að núverandi aðstæður hafi afar slæm áhrif á starfsemi sjúkrahússins
Íslenskur hjúkrunarfræðingur fær virt vísindaverðlaun
Dr. Þóra B. Hafsteinsdóttir hlaut nýverið hin virtu Anna Reynvaan vísindaverðlaun í Hollandi.
Golfmót hjúkrunarfræðinga
Golfmót hjúkrunarfræðinga fer fram á Bakkakotsvelli í Mosfellsdal, föstudaginn 9. júní 2006 og hefst kl. 13:00. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Soffíu Ákadóttur með tölvupósti á netfangið soffia.akadottir@hhjuk.hr.is eða í síma 821 2266 (best að hringja eftir kl. 14:00 á daginn).
Hjúkrunarrýmum fjölgað á Akranesi, dvalarrýmum fækkað, heimahjúkrun efld
Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur ákveðið að heimila að dvalarrýmum á Akranesi verði breytt í hjúkrunarrými. Siv tilkynnti forsvarsmönnum hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða á Akranesi frá þessari ákvörðun sinni í gær.
Úthlutun orlofsstyrkja og orlofshúsa er lokið fyrir sumarið 2006.
Búið er að úthluta orlofshúsum og orlofsstyrkjum fyrir sumarið 2006. Bréf hafa verið send til allra sem sóttu um. Í boði voru 330 orlofsstyrkir og 130 vikur í orlofshús. Alls bárust 1.026 umsóknir. Synjun fengu 576 félagsmenn.
Stofnanasamningur á Landspítala háskólasjúkrahúsi var undirritaður í hádeginu s.l. föstudag.
Hálfs árs vinnu við gerð samningsins lokið. Kynningar á samninginum til félagsmanna framundan
Vefkönnun um væntanlegt bann við reykingum á veitinga- og skemmtistöðum er nú lokið
Um 90% hjúkrunarfræðinga eru hlynntir banninu verði það að lögum.
ÁVÖXTUN Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) og Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga (LH) var á síðasta ári sú besta frá upphafi.
Nafnávöxtun LSR nam 18,9% og 18,5% hjá LH. Hrein raunávöxtun var 14% hjá LSR, samanborið við 9,3% árið 2004, og 13,7% hjá LH en hún var 9,4% árið 2004.
Fjölmenni á málþingi um sóknarfæri í hjúkrun
Um 100 hjúkrunarfræðingar á höfuðborgarsvæðinu mættu á málþing sem haldið var á vegum FÍH á Grand hóteli 26. apríl undir kjörorðunum "sóknarfæri í hjúkrun?". Að auki var fundurinn sendur út með fjarfundarbúnaði á heilbrigðisstofnanir á Egilstöðum, Ísafirði, Siglufirði, Akureyri, Sauðárkróki, Seyðisfirði, Húsavík og Neskaupstað.
Tæplega 7 milljónir króna í bætur
Hjúkrunarfræðingi, konu sem starfaði á speglunardeild Landspítala-háskólasjúkrahúss á árunum 1988 til 1997 eða þar til hún fór í veikindaleyfi, voru dæmdar 6,8 milljón krónur í bætur vegna veikinda sem hlutust af störfum hennar. Í dómnum segir að sannað sé að veikindi hennar megi rekja til notkunar efnisins glútaraldehýðs sem notað er til að hreinsa áhöld. Spítalanum var jafnframt gert að greiða stefnanda þrjár milljónir í málskostnað.
Einstaklingum, félögum og fyrirtækjum gefst kostur á að gerast stofnfélagar í Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur
Stjórn Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og Landspítala-háskólasjúkrahús vinnur nú að skipulagsskrá Rannsóknasjóðs Ingibjargar R. Magnúsdóttur. Markmið sjóðsins er að styrkja hjúkrunarfræðinga og ljósmæður í doktorsnámi. Til þess að sjóðurinn geti gegnt hlutverki sínu þarf að efla hann og styrkja.
Fyrsta kynning á símenntunarstefnu Fíh
Laugardaginn 29. apríl klukkan 16:30 á Hótel Nordica.
Nýtt launakerfi 1. maí 2006
Samkvæmt samkomulagi BHM félaga og fjármálaráðherra frá 28. febrúar 2005 tekur nýtt launakerfi gildi þann 1. maí næstkomandi. Undanfarnar vikur og mánuði hafa hjúkrunarfræðingar og aðrir BHM félagar unnið að gerð stofnanasamninga þar sem launakerfið er útfært.
Málþing-Sóknarfæri í hjúkrun?
Málþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 26. apríl 2006 - Ætlir þú að taka þátt í fjarfundi getur þú sótt fyrirlestrargögn hér á vefsvæðinu
Hjúkrunarfræðingar aðstoða munarðarlausar stúlkur í Afríku til skólagöngu
Um þessar mundir sækja 40 munaðarlausar stúlkur í Afríku skóla með aðstoð sjóðs (The Girl Child Education Fund) sem stofnaður var af Alþjóðasamtökum hjúkrunarfræðinga (ICN) og Florence Nightingale stofnuninni (FNIF). Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga lagði á árinu 2005, 2000 evrur í sjóðinn í stað þess að senda jólakort.
Aðalfundur fagdeildar gjörgæsluhjúkrunarfræðinga
Boðað er til aðalfundar fagdeildar gjörgæsluhjúkrunarfræðinga á mánudaginn 24.apríl. Dagskrá frá 18:00-22:00.
Ráðherrar ræða leiðir til að fjölga námsplássum í hjúkrunarfræði
"Vinnuálagið er að drepa þetta starfsfólk á spítölunum. Það kvíðir því að mæta í vinnu, það er hrætt við að gera mistök undir þessu gífurlega álagi og andvaraleysi stjórnvalda og skilningsskortur... hefur knúið þetta fólk til að vinna undir öryggismörkum og það er sífellt undir meiri þrýstingi um að taka að sér fleiri sjúklinga"
Utandagskrárumræða um skort á hjúkrunarfræðingum
Föstudaginn 21. apríl kl. 13:30 fer fram umræða utan dagskrár á Alþingi um skort á hjúkrunarfræðingum á Landspítala háskólasjúkrahúsi.
Vefkönnun um hjúkrunarmönnun á öldrunarstofnunum er lokið
82% þátttakenda segja vinnustað sinn ekki uppfylla tilmæli Landlæknis um hjúkrunarmönnun!
Aðalfundur fagdeildar geðhjúkrunarfræðinga
Boðað er til aðalfundar fimmtudaginn 11. maí nk. kl 18.00 - 20.00 að Suðurlandsbraut 22
Stofnanasamningar víða vel á veg komnir
Gerð stofnanasamninga milli aðildarfélaga BHM og heilbrigðisstofnana eru víða vel á veg komnir. Stofnanasamningar við Heilbrigðisstofnunina Siglufirði hafa þegar verið undirritaðir. Víðast er nú unnið að endanlegri skilgreiningu starfa og ákvörðun um röðun þeirra á lóðrétta ás launatöflunnar sem tekur gildi 1. maí næstkomandi.
Ályktun stjórnar Fíh um þjónustu öldrunarstofnana
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hvetur stjórnvöld og stjórnendur öldrunarstofnana til að gera nú þegar sérstaka þjónustusamninga um rekstur stofnananna þar sem skýrt verði kveðið á um gæði og magn þjónustunnar, og þann mannafla sem krafist er til að tryggja viðeigandi þjónustu hverju sinni.
Ályktun stjórnar Fíh um skort á hjúkrunarfræðingum á LSH
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) tekur undir ályktun og áskorun almenns fundar hjúkrunarfræðinga á Landspítala-háskólasjúkrahúsi sem haldinn var þann 5. apríl sl. þar sem lýst var yfir miklum áhyggjum vegna skorts á hjúkrunarfræðingum á LSH.
Notkun félagsmanna á vef félagsins náði hámarki í mars. Orlofsjóður, kjaramál og atvinnuauglýsingar, mest skoðuðu síðurnar
Í fyrsta sinn í rekstrasögu vefssvæðisins www.hjúkrun.is voru gerðar meira en 50.000 uppflettingar á einum mánuði.
Hlutverk hjúkrunarfræðinga í mótun heilbrigðiskerfis
Dr. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, doktor í stjórnsýslufræðum, flutti fyrirlestur fyrir deild hjúkrunarstjórnenda í húsakynnum FÍH 30. mars sl. Hún fjallaði m.a. um aðdragandann að sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík sem setur mark sitt á heilbrigðiskerfið í dag og hlutverk hjúkrunarfræðinga í því ferli og setti fram hugmyndir um endurskipulagningu íslenska heilbrigðiskerfisins.
Skýrsla ICN um hvernig bregðast eigi við skorti á hjúkrunarfræðingum í heiminum.
ICN hefur gert úttekt á þeim hjúkrunarfræðingaskorti sem heimsbyggðin stendur frammi fyrir og dregur fram forgangsatriði sem vinna þarf að í tengslum við vandann. Skýrslan kemur út í tenglsum við Alþjóðaheilbrigðisdaginn en áhersla hans í ár er mönnun heilbrigðisþjónustunnar víða um heim.
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga harmar starfslok tveggja hjúkrunarforstjóra í ályktun sinni
Á fundi stjórnar Fíh þann 20. mars voru til umræðu þær aðstæður, sem leiddu til starfsloka mjög hæfra hjúkrunar-forstjóra bæði Hrafnistuheimilanna og St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Stjórn ályktaði um málið og fól formanni að senda heilbrigðisráðherra bréf með ályktuninni
Alþjóðaheilbrigðisdagurinn 7. apríl 2006 - Samstarf í þágu heilbrigðis
Einkunnarorð dagsins í ár eru Samstarf í þágu heilbrigðis (Working together for Health). WHO hefur mælst til þess að athyglinni verði sérstaklega beint að vandamálum heilbrigðisstarfsfólks og mönnun heilbrigðisþjónustunnar víða um heim
Netnámskeiðið Geðvernd eftir barnsburð
Hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum heilsugæslustöðva, sem tekið hafa þátt í rannsókninni "Efling geðheilsu eftir fæðingu" frá árinu 2001, hefur árlega staðið til boða netnámskeiðið "Geðvernd eftir barnsburð."
Fundaferð formanns og hagfræðings Fíh til svæðisdeilda, Akranes og Sauðárkrókur
Þessa dagana eru Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Helga Birna Ingimundardóttir, hagfræðingur félagsins á fundaferðum til svæðisdeilda Fíh. Haldnir eru almennir samráðsfundir með hjúkrunarfræðingum á starfsvæðum
Fundaferð formanns og hagfræðings til svæðisdeilda, Vestmannaeyjar
Þessa dagana eru Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Helga Birna Ingimundardóttir, hagfræðingur félagsins á fundaferðum til svæðisdeilda Fíh.
Fulltrúar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sækja SSN fund í Færeyjum
Dagan 27 - 30. mars sækja fulltrúar Fíh fund SSN (Sygepleieskernes Samarbeit i Norden) í Færeyjum.
A-hluti vísindasjóðs
Styrkir úr A-hluta Vísindasjóðs hafa verið greiddir út til starfandi hjúkrunarfræðinga. Styrkirnir voru lagðir inn á bankareikninga sem stofnaðir voru í SPRON, Hátúni. Fyrir 100% starf voru greiddar kr. 46.305.
Ný bók um svefn og svefnvenjur barna
Draumaland, bók um svefn og svefnvenjur barna eftir Örnu skúladóttur er komin út. Í bókinni miðlar Arna af reynslu sinni á svefnvenjum og svefnvandamálum barna.
Marga Thome prófessor í hjúkrun
Marga er fimmti prófessorinn í hjúkrun á Íslandi og óskar Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga henni hjartanlega til hamingju.
Lausar stöður við hjúkrun í heimahúsum
Tryggingastofnun ríkisins auglýsir laus til umsóknar leyfi til að starfa samkvæmt samningi Tryggingastofnunar ríkisins og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um hjúkrun í heimahúsum vegna alvarlegra og langvinnra sjúkdóma og slysa.
Opinn kynningarfundur um heilbrigðisstefnuna
Heilbrigðisstefna til framtíðar- á hvaða leið erum við? er yfirskrift opins kynningar- og umræðufundar, sem haldinn verður föstudaginn 10. mars 2006, kl. 14:00 - 16:30/17:00 í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands.
Herdís Sveinsdóttir, prófessor í hjúkrun
Herdís er fjórði prófessorinn í hjúkrun á Íslandi og óskar Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga henni hjartanlega til hamingju.
Aðalfundur fagdeildar öldrunarhjúkrunarfræðinga
Fimmtudaginn 9. mars frá 18.00 - 20.00 verður haldinn aðalfundur fagdeildar öldrunarhjúkrunarfræðinga
Málþing um málefni vaktavinnustarfsmanna. Starfsumhverfi vaktavinnufólks - Hvert stefnir?
BHM, BSRB, fjármálaráðuneyti, Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga efna til málþings um málefni vaktavinnustarfsmanna.
Marstölublað Tímarits hjúkrunarfræðinga komið á vefsíðuna
Nýjasta tölublað Tímarits hjúkrunarfræðinga er nú í prentun en komið á heimasíðu félagsins í nýju umbroti sem hannað var af Þór Ingólfssyni, grafískum hönnuði í samráði við ritstjóra og ritnefnd eins og sjá má hér á síðunni.
Fundaferð formanns og hagfræðings til svæðisdeilda, Akureyri og Egilsstaðir
Á næstu vikum munu Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Helga Birna Ingimundardóttir, hagfræðingur félagsins funda í svæðisdeildum Fíh.
Heilbrigðisstefna til framtíðar- á hvaða leið erum við?
Heilbrigðisstefna til framtíðar- á hvaða leið erum við? er yfirskrift opins kynningar- og umræðufundar, sem haldinn verður föstudaginn 10. mars nk. kl. 14.00-16.30/17.00 í Öskju húsi náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands.
Framhaldsnám við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Miðvikudaginn 1. mars 2006, kl. 16:00 verður haldin kynning á framhaldsnámi við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.
AÐALFUNDUR Suðurlandsdeildar félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Fundurinn verður haldinn 2. mars 2006 kl. 20:00 í fundarsal Heilbrigðisstofnun Suðurlands í kjallara
Fundaferð formanns og hagfræðings til svæðisdeilda
Á næstu vikum munu Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Helga Birna Ingimundardóttir, hagfræðingur félagsins funda í svæðisdeildum Fíh.
Fagdeild hjúkrunarfræðinga í fyrirtækjum
hádegisfundur í húsnæði Fíh að Suðurlandsbraut 22, fimmtudaginn 23. febrúar klukkan 12.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr B-hluta vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Umsóknarfrestur er til 15. apríl. 2006
Heilbrigðisstefna og sameining sjúkrahúsa
Hvernig móta ríkisstjórnir heilbrigðiskerfið? Hvers vegna tókst sameining sjúkrahúsanna í Reykjavík árið 2000, þrátt fyrir áralanga andstöðu m.a. lækna við þau áform? Hvernig var sú ákvörðun tekin? Hvert var hið sérstaka stjórnmálalega og stjórnsýslulega samhengi? Þetta er meðal fjölmargra spurninga sem fjallað er um í doktorsritgerð dr. Sigurbjargar Sigurgeirsdóttur, stjórnsýslufræðings, sem nú er komin út hjá Háskólaútgáfunni.
Til hamingju Kristín
Dr. Kristín Björnsdóttir hefur verið tilnefnd til viðurkenningar Hagþenkis fyrir bók sína Líkami og sál: Hugmyndir, þekking og aðferðir í hjúkrun.
Breytingar á starfsreglum Starfsmenntunarsjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Á fundi stjórnar starfsmenntunarsjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 19. janúar 2006, var gerð breyting á starfsreglun sjóðsins. Breytingin felst í að frá og með 1. febrúar n.k þurfa að líða 3 ár milli fulllra styrkveitinga úr sjóðnum í stað tveggja áður.
Starfsmenntunarsjóður netvæðir umsóknir sínar
Starfsmenntunarsjóður Fíh hefur nú tekið í notkun nýjan hugbúnað, sem gerir félagsmönnum kleyft að sækja um styrki til sjóðsins hér á vefsvæði Fíh.
Umsókn um styrk frá fagdeild öldrunarhjúkrunarfræðinga
Styrkurinn er til að sækja ráðstefnu erlendis þar sem fjallað er um heilabilun.
Ársfundur Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði
Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og Landspítala-háskólasjúkrahús heldur ársfund sinn í dag í Eirbergi, húsi hjúkrunarfræðideildar kl. 14:00. Yfirskrift fundarins er Öflugt doktorsnám í hjúkrunarfræði og ljósmóðurfræði – öllum til heilla.
Staðgreiðsla skatta tekin af styrkjum
Samkvæmt lögum eru allir styrkir úr Sjúkra/Styrktarsjóðum skattskyldir nema útfararstyrkir.
Viðbótargjöf tveggja milljóna meðhöndlunarskammta af oseltamivir færð WHO til að hjálpa löndum sem ekki hafa efni á meðhöndlunum.
Lyfjaframleiðandinn Roche hefur fært WHO tvær milljónir meðhöndlunarskammta af oseltamivir til viðbótar, til notkunar í þróunarlöndum sem eru líklegust til að verða fyrir áhrifum fuglaflensu í mönnum.
Norðurlönd þurfa að huga að smitvörnum
Ritstjóri tímaritsins Félags- og heilsufrétta á Norðurlöndum segir að setja verði aðgerðir til að koma í veg fyrir alnæmissmit á grannsvæðum Norðurlanda
Miklar breytingar í heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu
Miklar breytingar hafa undanfarið átt sér stað í heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu.
Dauðadómi yfir Búlgörskum hjúkrunarfræðingum aflétt
Á annan dag jóla aflétti hæstiréttur Líbíu dauðadómi yfir fimm Búlgörskum hjúkrunarfræðingum og Palestínskum lækni og fyrirskipaði ný réttarhöld. Í maí 2004 voru sexmenningarnir dæmdir til dauða fyrir að hafa átt, að yfirlögðu ráði, að hafa smitað 400 börn af HIV veirunni á barnaspítala í Líbíu.
