Fréttsafn eftir árum//
Umfjöllun stjórnar um niðurskurð
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur á tveimur síðustu fundum sínum fjallað um tillögur stjórnvalda um niðurskurð í heilbrigðisþjónustu. Fulltrúar svæðisdeilda félagsins í stjórn hafa sérstaklega fylgst með boðuðum breytingum á þeirra svæði og gert stjórn grein fyrir yfirvofandi breytingum.
Fréttir af kjaramálum
Samninganefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur nú fundað tvisvar sinnum með Samninganefnd ríkisins. Samninganefndirnar munu funda næst í fyrstu viku janúar.
Gerðardómur sýknar BHM af kröfu Fíh
Gerðardómur hefur sýknað Bandalag háskólamanna (BHM) af kröfu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) um hlutdeild í eignamyndun sjúkrasjóðs og styrktarsjóðs BHM. Fíh krafðist hlutdeildar í eignamyndun sjóðanna þann tíma sem félagið hafði verið aðili að BHM, með tilvísun í 21. gr. laga BHM.
Boðað til samráðsfundar formanna fagfélaga um eflingu heilsugæslunnar
Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur boðað formenn átta fagfélaga heilbrigðisstarfsmanna til samráðsfundar um eflingu heilsugæslunnar og samstarf þeirra heilbrigðisstarfsmanna sem þar starfa. Til fundarins er boðað í framhaldi þeirrar umræðu sem farið hefur fram undanfarið um skort á heimilislæknum og viðbrögð við honum.
Styrkveitingar úr minningarsjóðum í varðveislu Fíh
Stjórnir minningarsjóðs Hans Adolfs Hjartarsonar og minningarsjóðs Kristínar Thoroddsen úthlutuðu styrkjum úr minningarsjóðunum fyrir nokkru.
Rannsókna- og vísindasjóður hjúkrunarfræðinga auglýsir eftir umsóknum um styrki
Rannsókna- og vísindasjóður hjúkrunarfræðinga auglýsir að nýju eftir umsóknum hjúkrunarfræðinga um styrki úr sjóðnum. Umsóknafrestur er til 1. febrúar 2011.
Fíh semur um afslátt fyrir félagsmenn sína
tilefni af heilsuátaki Fíh hefur félagið samið við Heilsuborg um afslátt til félagsmanna. Heilsuborg býður upp á heildstæða þjónustu margra fagaðila á heilbrigðissviði sem vinna markvisst að því að bæta heilsu og líðan einstaklinga sem til þeirra leita
Fíh veitir Heilsuhýsinu jólastyrk
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga sendir ekki út jólakort til vina og velunnara. Þess í stað er ákveðinni fjárhæð varið ár hvert til styrktar góðu málefni. Að þessu sinni hefur stjórn félagsins ákveðið að veita jólastyrknum í ár, kr. 200.000-, til Rauða kross Íslands með ósk um að fénu verði varið til reksturs Heilsuhýsisins.
Tækifæri í heilsugæslunni
Undanfarna daga hefur mikil umræða verið í fjölmiðlum um tækifæri til eflingar heilsugæslunnar og samvinnu þeirra heilbrigðisstétta sem þar starfa. Fréttablaðið birti meðfylgjandi grein formanns Fíh um málið þann 10. desember. Í greininni kemur meðal annars fram það mat formannsins að ekki sé þörf á nýrri heilbrigðisstétt til starfa í heilsugæslunni. Einnig að það að sjúkdómsgreina sé ekki keppikefli hjúkrunarfræðinga.
Fundur formanns Fíh með fjárlaganefnd Alþingis
Formaður Fíh fundaði í lok síðustu viku með fjárlaganefnd Alþingis vegna boðaðra breytinga á hagræðingaráformum í heilbrigðisþjónustu. Á fundinum varaði formaðurinn við þeim alvarlegu breytingum á hjúkrunarþjónustu á landsbyggðinni og þar með gæðum heilbrigðisþjónustu og öryggi sjúklinga, sem tillagðar breytingar munu leiða af sér.
Tímarit hjúkrunarfræðinga komið út
Jólablaðið er nú komið út og verður því dreift á fimmtudag. Tölublaðið hefur verið aðgengilegt á vefnum í nokkurn tíma. Með blaðinu kemur dagbókin eins og venjulega en prentun hennar hefur dregist.
Fundur stjórnar Fíh með heilbrigðisráðherra
Formaður Fíh og fimm fulltrúar úr stjórn félagsins hittu heilbrigðisráðherra og embættismenn í ráðuneytinu á fundi í morgun. Rætt var um niðurskurðinn sem framundan er og áhrif hans á heilbrigðisþjónustuna. Einnig var rætt um endurskipulagningu heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu og samstarf félagsins og ráðuneytisins.
Framboð til formanns Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Kjörnefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga auglýsir eftir framboði til formanns félagsins. Samkvæmt lögum félagsins skal formaður kjörinn til tveggja ára í senn með allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna það ár sem ber upp á oddatölu.
Lokadagur umsókna og gagnaskila til Styrktar- og sjúkrasjóðs er 9. desember
Stjórn og Styrktar- og sjúkrasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga minnir á að lokadagur til að sækja um og skila gögnum vegna umsókna sem miðast við almanaksár er 9. desember n.k.
Endurmenntun framlengir umsóknarfrest vegna tveggja námskeiða til 8. desember
Endurmenntun í samvinnu við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands hefur framlengt umsóknarfresti vegna tveggja námskeiða sem haldin verða á vorönn
Grein um áhrif efnahagskreppunnar á hjúkrun og hjúkrunarfræðinga
Áhugi heilbrigðisstarfsmanna víða um heim á áhrifum efnahagskreppunnar hér á landi á heilbrigðisþjónustuna er mikill. Í nýjasta tölublaði The World Medical Journal er birt grein eftir Elsu B. Friðfinnsdóttur, formann Fíh og Jón Aðalbjörn Jónsson, alþjóðafulltrúa Fíh, sem fjallar um áhrif efnahagskreppunnar á hjúkrunarfræðinga og hjúkrun á Íslandi.
Saga hjúkrunar á Íslandi á 20. öld tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna
Bók Margrétar Guðmundsdóttur, Saga hjúkrunar á Íslandi á 20. öld, sem gefin er út af Fíh er meðal 5 bóka sem tilnefndar hafa verið til íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðirita. Fíh óskar Margréti hjartanlega til hamingju með þennan frábæra árangur. Bókmenntaverðlaunin verða veitt í janúar 2011.
Tillaga SÍ um uppsögn á samningi um sérhæfða heimahjúkrun barna
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) hafa tilkynnt forsvarsmönnum Heilsueflingarmiðstöðvarinnar að lagt verði til við heilbrigðisráðherra að samningur SÍ við miðstöðina verði ekki framlengdur eftir 31. desember nk. Samanburður á kostnaði vegna legudaga á sjúkrahúsum og vegna heimahjúkrunar barnanna sýnir verulega hagkvæmni heimahjúkrunarinnar. Hver er þá ávinningurinn, ekki hvað síst í ljósi áherslna stjórnvalda á aukna heimahjúkrun?
Desemberuppbót 2010
Desemberuppbót á árinu 2010 skv. kjarasamningum ríkis, sjálfseignarstofnana og Reykjavíkurborgar er kr. 44.100 Desemberuppbót á árinu 2010 skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga er 72,364 kr.
Miklir vankantar á fyrirhugaðri sameiningu Landlæknisembættis og Lýðheilsustöðvar
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur sent heilbrigðisnefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um sameiningu Landlæknisembættisins og Lýðheilsustöðvar.
Viðræðuáætlun við ríkið undirrituð
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur undirritað viðræðuáætlun við ríkið, Reykjavíkurborg og við Samband Íslenskra sveitarfélaga. Áætlanirnar gera ráð fyrir að samningslok séu í árslok, ella megi vísa viðræðunum til sáttasemjara ríkisins.
8 atvinnuauglýsingar um störf erlendis fyrir hjúkrunarfræðinga
Á Atvinnutorgi hjúkrunarfræðinga eru um þessar mundir 8 auglýsingar um störf erlendis fyrir hjúkrunarfræðinga. Auglýsingarnar eru frá Noregi og Grænlandi
Ályktun hjúkrunar- og ljósmæðraráðs HSu
Hjúkrunar- og ljósmæðraráð Heilbrigðisstofnunar Suðurlands sendir heilbrigðisráðherra ályktun sína vegna niðurskurðar á fjárveitingum
Ályktun stjórnar Suðurlandsdeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
"Sá niðurskurður sem boðaður er á Heilbrigðisstofnun Suðurlands er gríðarlegur og með öllu óskiljanlegur. Boðað hefur verið að fjárframlög til sjúkrasviðs HSu muni lækka um 412 milljónir króna á næsta ári, en það jafngildir rekstri hand-og lyflæknisdeildar, skurðstofu og fæðingardeildar"
Saga hjúkrunar á Íslandi er nú komin út - Fíh býður félagsmönnum til útgáfuteitis
Nú í nóvember eru 91 ár liðin frá því að hjúkrunarfræðingar stofnuðu fyrsta félag hjúkrunarfræðinga hér á landi, Félag íslenskra hjúkrunarkvenna. Af þessu tilefni gefur Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga út bók um sögu hjúkrunar hér á landi á síðustu öld.
Breyttur opnunartími skrifstofu Fíh
Skrifstofa félagsins verður opin frá 10:00-16:00 frá og með 1. nóvember
Úthlutun úr starfsmenntunarsjóði Fíh
Stjórn starfsmenntunarsjóðs úthlutaði 20. október styrkjum fyrir um 4,5 milljónir króna. Að auki var starfsreglum breytt og geta sjóðfélagar nú sótt um 40.000 kr á ári.
Hjúkrunarráð Landspítala telur að boðaður niðurskurður hafi neikvæð áhrif á þjónustu við sjúklinga og stofni öryggi þeirra í hættu
Leitað hefur verið allra leiða til að hagræða í rekstri Landspítala bæði í innkaupum og rannsóknum ásamt því að starfsmönnum hefur fækkað um 12% frá því í fyrra eða um 600 manns. Frekari niðurskurður á Landspítala er því ekki ásættanlegur.
Ályktun Norðurlandsdeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um boðaðan niðurskurð
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga Norðurlandsdeild mótmælir harðlega óvarkárum og ósanngjörnum niðurskurðartillögum sem sjúkrastofnunum á Norðurlandi er ætlað að mæta í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2011.
Bilun í umsóknakerfi Styrktar- of sjúkrasjóðs
Tæknileg bilun er í rafrænu umsóknarkerfi Styrktar- of sjúkrasjóðs. Á meðan viðgerð stendur yfir er ekki hægt að sækja um styrki í kerfinu.
Landsbyggðarsjúkrahús og hátæknisjúkrahús?
Guðrún Árný Guðmundsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur sjúkrasviðs Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga sendi formanni Fíh og fleirum hugleiðingar sínar um þá samkeppni sem er að koma upp milli stjórnenda og starfsfólk landsbyggðarsjúkrahúsa annars vegar og Landspítala hinsvegar, í kjölfar boðaðs niðurskurðar á fjárveitingum til heilbrigðisþjónustu. Hugleiðingar og hvatning Guðrúnar fer hér á eftir.
Krabbameinsfélagið stendur fyrir Bleika boðinu
Bleika boðið er kvennakvöld 22. október í Háskólanum í Reykjavík, Nauthólsvík, þar sem 1000 konur koma saman. Tilgangurinn er að eiga góða og skemmtilega kvöldstund saman ásamt því að hvetja til árvekni gegn krabbameinum hjá konum.
Ályktun frá stjórn Vesturlandsdeildar Fíh
Stjórn Vesturlandsdeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (VFíh) harmar þann mikla niðurskurð sem boðaður hefur verið, í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2011, fyrir hinar ýmsu heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni.
Doktorsvörn Ástu St. Thoroddsen, dósents
Ásta St. Thoroddsen varði doktorsritgerð sína við Örebro háskóla þann 11. október síðastliðinn. Doktorsrannsókn Ástu saman-stóð af 3 rannsóknum, þar sem kannað var notagildi, innihald, nákvæmni, umfang og sam-kvæmni gagna í hjúkrun sem skráð voru með stöðluðu fag-máli í sjúkraskrár.
Ályktun frá hjúkrunarráði FSA
Hjúkrunarráð sjúkrahússins á Akureyri (FSA) lýsir yfir miklum áhyggjum af niðurskurði til heilbrigðisstofnana á Norðurlandi og skorar á heilbrigðisráðherra að endurskoða niðurskurðatillögur. Ef sjúklingar sem þurfa að leggjast inn á sjúkrahús til meðferðar, þurfa burt úr sinni heimabyggð og burt frá fjölskyldu um styttri eða lengri tíma, hrynur einn af máttarstólpum búsetu.
Ályktun hjúkrunarráðs Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga vegna fjárlagafrumvaps 2011
Hjúkrunarráð fordæmir ójafnar og ósanngjarnar niðurskurðartillögur sem Heilbrigðisstofnun Þingeyinga er ætlað að mæta í fjárlagafrumvarpi 2011. Hjúkrunarráð fullyrðir að margar aðgerðir sem boðaðar eru muni leiða til lakari heilbrigðisþjónustu og enn ójafnari aðgangs landsmanna að sjúkrahús - og sérfræðiþjónustu.
Viðtal við formann Fíh um niðurskurð í heilbrigðisþjónustunni
Mikil viðbrögð hafa orðið meðal hjúkrunarfræðinga og annarra við boðuðum niðurskurði í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga ræddi málið í Reykjavík síðdegis í gær.
Ályktun stjórnar Austurlandsdeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Nú hefur verið kynnt frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2011. Samkvæmt þessu frumvarpi á að skera niður í rekstri Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) um tæpan hálfan milljarð eða um sömu krónutölu og hjá Landspítala. Loka á sjúkrarúmum á Seyðisfirði, Egilsstöðum og Vopnafirði og segja upp þriðjungi starfsfólks stofnunarinnar.
Örfá pláss laus á námskeiðið um sárameðferð
Námskeið um sárameðferð sem haldið verður 4.og 5. nóvember 2010 er við það að fyllast. Þeir sem ætla á námskeiðið eru hvattir til að skrá sig sem fyrst og greiða þátttökugjaldið. Þeir sem þegar hafa skráð sig en ekki greitt þatttökugjaldið eru hvattir til að gera það til að staðfesta skráninguna.
Fullbókað er á námskeiðið 8 vikur fyrir vellíðan sem hefst 21. október
Þriðja námskeiðið hefst 30. nóvember n.k.
Stjórn Fíh mótmælir ómarkvissum niðurskurði í heilbrigðiskerfinu
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) mótmælir harðlega þeim mikla og ómarkvissa niðurskurði á heilbrigðisstofnunum sem boðaður er í frumvarpi til fjárlaga 2011. Stjórnin varar við þeim alvarlegu afleiðingum sem svo miklar og bráðar breytingar á heilbrigðisþjónustunni munu hafa fyrir alla landsmenn
Viðbragðsáætlun vegna niðurskurðar á heilbrigðisstofnunum
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur sett fram viðbragðsáætlun vegna þess mikla niðurskurðar sem boðaður hefur verið á heilbrigðisstofnunum landsins og fjöldauppsagna sem reikna má með að gripið verði til, ef fjárlagafrumvarpið verður að lögum.
Fyrra heilsunámskeiðið fullbókað
Fullt er orðið á fyrra námskeiðið 8 vikur fyrir vellíðan sem hefst á morgun, 5. október. Næsta námskeið hefst fimmtudaginn 21.október n.k.
Dr. Sólfríður Guðmundsdóttir ráðin til að hafa umsjón með átakinu Hugsum um heilsuna
Sólfríður hefur verið ráðin til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga til að sinna heilsueflingarátaki hjúkrunarfræðinga.
Í framhaldi af heilsuþingi stendur Fíh fyrir heilsunámskeiðinu 8 vikur fyrir vellíðan
Námskeiðið er aðlagað að hjúkrunarfræðingum sem vilja efla eigin heilsu og vellíðan. Það er einnig fyrir hjúkrunarfræðinga sem vilja verða leiðbeinendur (heilsuboðar/heilsuráðgjafar)
Styrkir til rannsókna í öldrunarmálum
Stjórn Öldrunarráðs Íslands Rannsóknarsjóður Öldrunarráðs Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrk úr sjóðnum
Landlæknisembættið hættir útgáfu leyfa til nálastungumeðferða
Embættið telur við nánari skoðun að því sé ekki heimilt skv. lögum að gefa út slík leyfi og hættir því útgáfu þeirra.
Ný fagdeild stofnuð
Fagdeild um viðbótarmeðferð í hjúkrun var formlega stofnuð fimmtudaginn 23. september síðast liðinn.
Síðasti dagur skráningar á Heilsuþing hjúkrunarfræðinga
Í dag er síðasti dagur skráningar á Heilsuþingið. Rúmlega 100 manns hafa þegar skráð sig og eru nokkur sæti laus. Heilsuþingið verður sent í fjarfundi til Akureyrar
Námskeið um sárameðferð - Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga í samvinnu við Guðbjörgu Pálsdóttur
Á námskeiðinu verður farið yfir grundvallaratriði sárgræðslu svo sem lífeðlisfræði sárgræðslu og þá þætti sem hafa áhrif sárgræðsluferlið
Unnið að breytingum á húsnæði Fíh til hagræðingar fyrir félagsmenn. Atvinnuskapandi verkefni.
Um þessar mundir er unnið að breytingum á eldhúsi og þjónustusvæði fyrir félagsmenn. Stjórn Fíh lítur svo á að það sé félaginu bæði rétt og skylt að leggja sitt af mörkum til atvinnusköpunar á Íslandi. Að verkefninu starfa auk starfsmanna Fíh, arkitekt og hönnuðir, smiðir, rafvirkjar, pípulagningameistarar og málarar.
Skráning í Fagdeild stjórnenda er nú í fullum gangi
Þeim sem áhuga hafa á inngöngu í deildina bent á að kynna sér nýjar starfsreglur deildarinnar en þar er kveðið á um hvaða skilyrðum þarf að fullnægja til að skrá sig í hana
Ertu að hugsa um meistaranám?
Umsóknarfrestur fyrir meistaranám í hjúkrunarfræðideild HÍ á vorönn 2011 er 15. október. Meistaranám við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands er 120 eininga nám og boðið er upp á fjórar námsleiðir. Rafræn skráning fer fram á www.hi.is.
Nýr heilbrigðisráðherra tekur við völdum
Guðbjartur Hannesson, nýr heilbrigðisráðherra, tók í dag við lyklavöldum í heilbrigðisráðuneytinu úr hendi Álfheiðar Ingadóttur, sem lét af embætti heilbrigðisráðherra í dag.
Ályktun stjórnar Fíh vegna áfangaskýrslu um eflingu heilsugæslunnar
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) mótmælir harðlega þeim áherslum sem fram koma í áfangaskýrslu um eflingu heilsugæslunnar.
Tveimur hjúkrunarheimilum Hrafnistu lokað og nýtt – Mörkin opnuð í staðinn
Um síðustu áramót var ákveðið að loka hjúkrunarheimilum Hrafnistu að Víðinesi og Hrafnistu á Vífilsstöðum þann 1. september 2010
Fjölgun á viðtölum við hjúkrunarfræðinga og ljósmæður
Skráðum viðtölum hjá hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum á heilsugæslustöðvum fjölgaði töluvert milli áranna 2008 og 2009, að því er fram kemur í Talnabrunni, fréttabréfi landlæknis um heilbrigðistölfræði
Landlæknir vekur athygli á reglum í dreifibréfi
Að gefnu tilefni vill Landlæknisembættið vekja athygli allra sem átt geta hlut að máli að óheimilt er að starfa sem heilbrigðisstarfsmaður á Íslandi áður en tilskilið starfsleyfi hefur verið gefið út af landlækni og er í gildi
Hjúkrunarfræðingar efla eigin heilsu
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga efnir til átaks meðal hjúkrunarfræðinga um heilsueflingu nú á haustönn. Átakinu er ætlað að hvetja hjúkrunarfræðinga til að huga að eigin heilsu,
Golfmót Hjúkrunarfræðinga
Haustgolfmót hjúkrunarfræðinga og maka þeirra verður haldið á golfvellinum Seltjarnarnesi föstudaginn 27. ágúst. n.k.
100 ár liðin frá dauða Florence Nightingale
Í dag 13 ágúst 2010 eru 100 ár liðin frá andláti Florence Nightingale. Florence Nightingale (12. maí 1820–13. ágúst 1910), einnig þekkt sem „konan með lampann“, var bresk hjúkrunarkona, rithöfundur og tölfræðingur. Hún linaði þjáningar sjúkra og særðra hermanna í Krímstríðinu og hlaut sitt fræga viðurnefni „konan með lampann“
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga lýsir yfir ánægju með stefnu heilbrigðisráðherra
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga lýsir yfir ánægju með stefnu heilbrigðisráðherra hvað varðar eflingu forvarna og heilsugæslu innan skólakerfisins, sérstaklega í framhaldsskólum. Það er stefna Fíh að styrkja beri heilsugæsluna og allt frá Hjúkrunarþingi árið 1998 hefur félagið bent á að eitt af brýnustu verkefnum hennar sé að efla heilsugæslu í framhaldsskólum.
Fréttir af stöðu kjaraviðræðna
Fíh hefur nú hafið undirbúning kjaraviðræðna með það að markmiði að viðræður hefjist á haustmánuðum.
Mikil aðsókn í hjúkrunarfræðinám
Umsóknir stúdenta um nám í hjúkrunarfræði haustið 2010 eru fleiri en nokkru sinni.
Hjúkrunarfræðingum á atvinnuleysisskrá fækkar
Hjúkrunarfræðingum á atvinnuleysisskrá hefur heldur fækkað á undanförnum mánuðum en í febrúar mánuði voru 50 hjúkrunarfræðingar skráðir atvinnulausir en í maí s.l. voru þeir 41 og hafði því fækkað um tæp 20%.
Marga Thome sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf í þágu heilbrigðismenntunar og rannsókna
Við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, 17. júní 2010, sæmdi forseti Íslands tólf Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Marga Thome prófessor var sæmd riddarakrossi fyrir störf í þágu heilbrigðismenntunar og rannsókna
Sögusýning í tilefni af 80 ára afmæli Landspítala opnuð í dag
Sýningin skiptist í sex hluta sem er á göngum og í stigahúsi upp frá aðalinngangi í Kringlunni. Meðal þess sem sjá má á sýningunni eru gömul lækningaáhöld og ljósmyndir úr starfseminni frá 1933. Við opnun sögusýningarinnar verður afhjúpuð mynd af Vigdísi Magnúsdóttur fyrrverandi hjúkrunarforstjóra og forstjóra Landspítala, sem lést á síðasta ári.
Halla Logadóttir útskrifaðist aðeins 21 árs gömul af hjúkrunarfræðideild við Háskóla Íslands
Halla lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum Hraðbraut árið 2006 og þaðan lá leiðin beint í hjúkrunarfræðina. "Ég vissi alveg hvað ég vildi læra," segir hún ákveðin og getur þess að þrátt fyrir ungan aldur hafi skólafélagarnir tekið vel á móti henni og litið á sem jafningja. "Enda er ég nú heldur ekkert smábarn," segir hún kímin.
Lækkun launa í heilbrigðiskerfinu
Laun hjúkrunarfræðinga hafa lækkað um 9,7% og stöðugildum hefur fækkað um 2,5%. Í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins kom fram að megin áhersla væri á að vernda störfin.
Gunnar Helgason stjórnarmaður í stjórn Fíh kominn til Haítí
Gunnar Helgason, hjúkrunarfræðingur, kom til Haítí í dag þar sem hann mun starfa næstu vikur fyrir Rauða kross Íslands á sjúkrahúsi finnska og þýska Rauða krossins í Port-au-Prince. Á vegum Rauða kross Íslands eru nú fimm hjálparstarfsmenn á jarðskjálftasvæðinu, þar sem enn ríkir mikil og sár neyð.
Fyrsti fundur nýrrar stjórnar Fíh
Ný stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga kom saman til fyrsta fundar í gær. Á fundinum var Kristín Thorberg kjörin varaformaður félagsins, Ragnheiður Gunnarsdóttir gjaldkeri stjórnar og Herdís Gunnarsdóttir ritari stjórnar
Félagsdómur dæmir Fíh í vil
Félagsdómur dæmdi þann 4. Júní 2010 Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga f.h. hjúkrunarfræðings starfandi í Laugarási í Biskupstungum gegn íslenska ríkinu vegna Heilbrigðisstofnunar Suðurlands félaginu í vil.
Fundargerð aðalfundar komin á vefsvæði fundarins
Í samræmi við lög Fíh er fundargerð aðalfundar komin á vefsvæði aðalfundar og fundarmenn hafa 2 vikur til að gera athugasemdir við fundargerðina. Eftir þann tíma telst hún samþykkt. Athugasemdum má skila á netfangið adalbjorg@hjukrun.is
71 milljón kr. úthlutað úr Forvarnasjóði til 79 verkefna
Úthlutað hefur verið úr Forvarnasjóði fyrir árið 2010. Að þessu sinni er ríflega 71 milljón kr. úthlutað til 79 verkefna þar af er sérstök fjárveiting, 15 milljónir, sem ætluð er til sérstakra heilsueflingaverkefna. Alls bárust umsóknir um 129 verkefni.
17.200 félagsmenn aðildarfélaga Unio í Noregi í verkfalli
Norskir hjúkrunarfræðingar sem starfa hjá sveitarfélögum eru í verkfalli. Auk þeirra eru í verkfalli iðju- og sjúkraþjálfar, starfsfólk stjórnsýslu sveitafélaga, framhalds- grunn- og leikskóla. Unio er samningssamstarf stéttarfélaga í Noregi og Norsk sykepleierforbund er aðili að samstarfinu.
Nafn sameinaðrar stofnunar Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættis verði Heilbrigðisstofa
Í ályktun aðalfundar Fíh er skorað á stjórnvöld að finna sameinaðri stofnun Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættis nafn sem endurspegli verkefni hennar, lýsi hlutverki hennar og er hlutlaust gagnvart starfsstéttunum þrjátíu og tveimur sem stofnunin sér um leyfisveitingar til og hefur eftirlit með. Jafnframt ályktar fundurinn að yfirmaður stofnunarinnar skuli vera forstjóri eða forstöðumaður.
Huga ber að heilsu og vellíðan ásamt góðu heilbrigðiskerfi við enduruppbyggingu íslenska samfélagsins
Aðalfundur Fíh sem haldinn var þann 27. maí s.l. ályktaði um áherslur í enduruppbyggingu íslensks samfélags. Í ályktuninni er skorað á stjórnvöld að takast á við það erfiða verkefni að endurskoða og móta heilbrigðiskerfið með þarfir skjólstæðinga að leiðarljósi.
Áhersla lögð á ábyrgð hvers einstaklings á eigin heilsu
Í ályktun aðalfundar eru landsmenn hvattir sérstaklega til að huga vel að heilsu og velferð sinni á þessum umrótatímum. Sterk fjölskyldu og vinabönd munu enn fremur skila þjóðinni sterkum einstaklingum segir m.a. í ályktuninni
Kosningum aðalfundar lokið
Einungis kom til atkvæðagreiðslu um fulltrúa fagdeilda í stjórn félagsins þar sem framboð voru 8 til 7 stjórnarsæta. Félagsmenn sem ekki eru fulltrúar svæðis- eða fagdeilda í stjórn, fulltrúar í ritnefnd og skoðunarmenn reikninga voru sjálfkjörnir.
Formaður Fíh hvetur í opnunarávarpi sínu á aðalfundi félagsins til vandvirkni og sanngirni
Í ræðu sinni við setningu aðalfundar Fíh lagði Elsa B. Friðfinnsdóttir formaður Fíh áherslu á að Hjúkrunarfræðingar þurfi að muna að það eru stjórnvöld sem bera ábyrgð á heilbrigðisþjónustunni. Enginn geti þó skorast undan því að taka þátt í því endurbótastarfi sem þarf að eiga sér stað og að hjúkrunarfræðingar þurfi að velja réttu málin til að berjast fyrir.
Stjórn Fíh hefur ekki fengið formlegt svar við erindi sínu til stjórnvalda sem sent var í júní 2009
Versta leiðin til hagræðingar valin. "Það er að mínu mati skammgóður vermir, því halda menn að heilbrigðisvandamálin hverfi bara þó fólk dragi nú við sig að leita eftir þjónustu sem það þarf sífellt að greiða aukinn hluta kostnaðarins fyrir?" Í setningarávarpi sínu bendir formaður Fíh á þann vanda sem vofir yfir þegar vandamálin sem bíða úrlausnar muni skella á heilbrigðiskerfinu.
Háskólinn á Bifröst boðar til kynningarfundar um meistaranám í stjórnun heilbrigðisþjónustu
Háskólinn á Bifröst hefur undanfarin ár boðið upp á meistaranám í stjórnun heilbrigðisþjónustu. Um er að ræða þverfaglegt nám sem er skipulagt þannig að nemendur fái heildarsýn yfir málaflokkinn og séu þannig búnir undir leiðtogahlutverk í ört vaxandi og síbreytilegri heilbrigðisþjónustu.
Skrifstofa Fíh er lokuð í dag 27. maí vegna aðalfundar félagsins
Aðalfundur Fíh er haldinn á Grand hótel Reykjavík og hefst kl 09:00
LSR heldur kynningarfundi fyrir sjóðfélaga sem vilja fræðast um lífeyrismál
Hægt er að velja um tvær tímasetningar þann 27. maí: 8:30 -10:00 eða 16:30 -18:00 Fundirnir eru haldnir á Grand Hótel Reykjavík. Skráning nauðsynleg
Háskólinn í Basel leitar til Íslands eftir aðstoðarmanni við rannsóknir/Doktorsnema
Stofnunin leitar eftir einstaklingi sem getur undirbúið, innleitt og gert mat á hjúkrunarleiddri deild við Kantonsspital Aarau AG.
Hjúkrunarráð sjúkrahússins á Akureyri (FSA) lýsir yfir áhyggjum
FSA hefur alla tíð kappkostað að halda starfsemi sinni innan fjárheimilda ríkissjóðs. Með auknum kröfum um meiri sparnað verða fáir ráðnir
30 hjúkrunarfræðingar fengu styrk úr Vísindasjóði Fíh
Þann 12. maí s.l. var úthlutað styrkjum úr B-hluta Vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga tæpum 10 miljónum króna
Tillögur til lagabreytinga komnar á vef aðalfundar 2010
Þær tillögur til lagabreytinga sem stjórn Fíh hafa borist ernú hægt að skoða á vefsvæði aðalfundar
Háskóli Íslands - Diplóma í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu Umsóknarfrestur vegna diplómanáms í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu er til 5. júní
Umsóknarfrestur vegna diplómanáms í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu er til 5. júní. Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands í samstarfi við fjölda aðila býður upp á nýja námsleið fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu
Skrifstofa Fíh er lokuð þann 12. maí frá kl 13.00
Vegna hátíðardagskrár í tilefni Alþjóðadags hjúkrunarfræðinga er skrifstofa Fíh er lokuð þann 12. maí frá kl 13.00 Hjúkrunarfræðingar eru hvattir til að mæta og taka þátt í dagskrá á Grand hótel Reykjavík kl 13:00 - 16:00
Golfmót Hjúkrunarfræðinga
Golfmót hjúkrunarfræðinga og maka þeirra verður haldið á golfvellinum Borgarnesi föstudaginn 28.maí Keppt verður í 2 flokkum
Vika hjúkrunar á Landspítala dagana 10.-14. maí
Vika hjúkrunar á Landspítala dagana 10.-14. maí er í samstarfi við Svæðisdeild höfuðborgarsvæðisins innan Fíh
Hætt við heilsueflingardaga á Sauðárkróki vegna dræmrar þátttöku
Áður auglýstir heilsueflingardagar sem Norðurlandsdeild Fíh hugðist halda á Sauðárkróki þann 8. maí n.k hefur verið aflýst vegna dræmrar þátttöku.
Nýtt tölublað Tímarits hjúkrunarfræðinga
2. tölublað Tímarits hjúkrunarfræðinga 2010 er nú komið á vefinn. Blaðið var nýlega borið út til félagsmanna en hægt er að nálgast það vefrænt undir flipanum Tímarit.
Orlofsuppbót 2010
Þar sem kjarasamningar Fíh við ríki, sjálfseignarstofnana, Reykjavíkurborgar og Launanefndar sveitarfélaga eru lausir verður orlofsuppbót á árinu 2010 hin sama og árið 2009 eða kr. 25.800, miðað við fullt starf
Samstarfssamningur um verknám á Austurlandi
Síðastliðinn föstudag var undirritaður samningur milli Háskólans á Akureyri og Heilbrigðisstofnunar Austurlands um samvinnu við verknám nemenda á heilbrigðisvísindasviði HA.
Fagdeild um viðbótarmeðferðir í hjúkrun
Unnið er að stofnun fagdeildar innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um viðbótarmeðferðir í hjúkrun. Markmið fagdeildarinnar er meðal annars að standa fyrir fræðslu, miðla upplýsingum, stuðla að rannsóknum og vera vettvangur þeirra sem hafa áhuga á viðbótarmeðferðum.
Stórafmæli Vigdísar Finnbogadóttur 15. apríl 2010
Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands og heiðursfélagi í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga verður 80 ára þann 15. apríl n.k. Í tilefni afmælisins er boðað til hátíðardagskrár í Háskólabíói
Hátíðardagskrá þann 12. maí
Alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga 12. maí 2010 er tileinkaður Florence Nightingale þar sem 100 ár verða liðin frá dauða hennar á þessu ári. Í tilefni dagsins býður Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga til hátíðardagskrár á Grand hótel Reykjavík miðvikudaginn 12. maí kl. 13:00-16:00
Meistaranám í hjúkrunarfræði - umsóknarfrestur að renna út
Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands vill minna á umsóknarfrest vegna meistaranáms, en fresturinn rennur út 15. apríl nk.
Þverfaglegt meistara- og diplómunám í heilbrigðisvísindum
Umsóknarfrestur í meistara- og diplomunám í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri er til 5. júní 2010. Inntökuskilyrði er fullgilt háskólanám á sviði heilbrigðisvísinda og skyldra greina með að öllu jöfnu fyrstu einkunn frá viðurkenndri háskólastofnun.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga boðar til aðalfundar fimmtudaginn 27. maí 2010 kl 09:00 til kl 17:00
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður haldinn fimmtudaginn 27. maí 2010 kl 09:00 til kl 17:00 á Grand Hóteli í Reykjavík. Félagsmenn þurfa að skrá þátttöku á fundinn þar sem eingöngu félagsmenn með fulla aðild og fagaðild sem skrá sig til þátttöku fyrir 20. maí n.k. hafa atkvæðisrétt á fundinum.
Hjúkrunarfræðingur í útvarpsviðtali
Hildur Magnúsdóttir, margreyndur sendifulltrúi Rauða krossins og hjúkrunarfræðingur á Landspítala, sagði frá reynslu sinni af hjálparstarfi í útvarpsviðtali á föstudaginn langa 2. apríl kl. 13. Hægt er að hlusta á viðtalið á vefsíðu RÚV.
Nýtt met. 61.762 uppflettingar gerðar á www.hjukrun.is í marsmánuði
Aldrei fyrr hafa uppflettingar á vefsvæði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verið jafn margar á einum mánuði. Alls var farið inn á svæðið 14.022 sinnum í mánuðinum og gerðar 61.762 uppflettingar.
123 milljónir greiddar út úr A-hluta Vísindasjóðs
Þann 26. mars 2010, greiddi Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga út styrk til félagsmanna vegna A-hluta vísindasjóðs. Að þessu sinni nam heildarupphæðin rúmlega 123 milljónum króna, en styrkurinn barst 2.767 félagsmönnum.
Frestur til að skrá sig á 20. Norrænu ráðstefnuna í öldrunarfræðum (20 NKG) framlengdur um mánuð
Það hefur verið ákveðið að framlengja frest til skráningar á lægra gjaldinu til 30. apríl eða um mánuð. Gjaldið er kr. 65.000 sem telst hóflegt á alþjóðavísu. Um mánaðarmótin apríl/maí hækkar gjaldið svo í kr. 78.000 og er það gjald í gildi alveg fram á fyrsta ráðstefnudag. Hægt er að skrá sig rafrænt í gegnum heimasíðu ráðstefnunnar: www.congress.is/20NKG
Yfirlýsing frá stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga vegna greinargerðar Landlæknisembættisins
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) vekur athygli á að við vinnslu greinargerðar Landlæknisembættisins um mat á stöðu öryggismála varðandi mönnun á Landspítala hafi að mati stjórnarinnar, ekki verið notast við áreiðanleg eða réttmæt gögn.
Endurmenntun HÍ býður hjúkrunarfræðingum afslátt á völdum námskeiðum
Endurmenntun HÍ hefur sent Fíh sértilboð um námskeið fyrir húkrunarfræðinga. Námskeiðin bjóðast félgasmönnum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga með 15% afslætti
Hjúkrunarfræðingi dæmdar bætur fyrir tilfærslu í starfi á Landspítala
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Landspítala til að greiða konu, sem starfaði sem hjúkrunarfræðingur á sjúkrahúsinu, 2,8 milljónir króna í bætur vegna tekjumissis af völdum veikinda og starfsloka á sjúkrahúsinu í kjölfar ólögmætrar ákvörðunar Landspítalans um að færa konuna milli deilda
Breyttar reglur starfsmenntunarsjóðs
Stjórn starfsmenntunarsjóðs ákvað á fundi sínum 20. janúar að stytta fyrningartímann sem liða þarf milli úthlutunar úr þremur í tvö ár. Félagar í sjóðnum geta því sótt um og fengið úthlutað 50.000 kr. á tveggja ára fresti.
Aðalfundur og afmæli
Stjórn Fagdeildar Þvagfærahjúkrunarfræðinga boðar til aðalfundar og afmælisveislu föstudaginn 12. febrúar 2010. Aðalfundurinn verður klukkan 17-18 á Landspítala, Hringbraut, Jónasarsalur (3. hæð innan við 13-D).
Úrsögn Fíh úr BHM
Eins og hjúkrunarfræðingum er kunnugt var samþykkt á aðalfundi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sem haldinn var 12. maí sl. „að fela stjórn félagsins að ganga frá úrsögn félagsins úr Bandalagi háskólamanna (BHM)“. Með bréfi dags. 21. september 2009 tilkynnti félagið formlega úrsögn úr BHM. Úrsögnin tók gildi um nýliðin áramót.
Námskeið fyrir trúnaðarmenn
Námskeið fyrir trúnaðarmenn verður haldið þann 24. febrúar 2010, kl. 12:30 - 17:00 í húsakynnum félagsins að Suðurlandsbraut 22, Reykjavík. Hámarksfjöldi á námskeiðið er 35 manns. Því er afar mikilvægt að allir skrái sig.
Meistaranám í stjórnun heilbrigðisþjónustu við Háskólann á Bifröst
Hákólinn á Bifröst hefur sent www.hjukrun.is eftirfarandi kynningu á meistaranámi í stjórnun heilbrigðisþjónustu. Námið hefst 18 janúar n.k
Endurmenntun HÍ kynnir námskeið á meistarastigi
Endurmenntun hefur sent www.hjukrun.is upplýsingar um námskeið á meistarastigi sem hægt er að taka þar. Hjúkrunarfræðingar sækja mikið sálgæslunámskeiðin sem nú er hægt að ljúka með diplomu eftir ákveðin einingafjölda. Jafnframt bendir Endurmenntun sértaklega á áhugavert námskeið um íþróttir, sjúkdóma og lyf og um áhrifaþætti öldrunar
Stýrihópur mótar stefnu fyrir Landspítala næstu 5 árin
Verið er að setja á hóp stýrihóp sem á að vinna að stefnumótun fyrir Landspítalann næstu fimm árin, en verkinu á að ljúka fyrir páska. Þetta kemur fram í mánudagspistli Björns Zoëga, forstjóra spítalans.
Sólveig Guðlaugsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur á Barna- og unglingageðdeild Landspítala, sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu
Forseti Íslands sæmdi Sólveigu Guðlaugsdóttur, geðhjúkrunarfræðing á Barna- og unglingageðdeild Landspítala riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag til heilbrigðismála og umönnunar ungmenna. Sólveig var gerð að heiðursfélaga í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga árið 2008
Astmalyf áfram niðurgreidd og komugjöld hækka lítillega
Heilbrigðisráðuneytið vill árétta að flest astma- og ofnæmislyf er niðurgreidd af sjúkratryggingum eins og áður. Þá eru komugjöld í heilsugæslunni óbreytt en önnur hækka lítillega. Hjúkrunarfræðingar geta hjálpað til að draga úr áhyggjum sjúklinga vegna þessa.
Nýr landlæknir skipaður frá áramótum
Dr. Geir Gunnlaugsson verður næsti landlæknir frá 1. janúar 2010. Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, ákvað þetta í dag. Fimm sóttu um starf landlæknis, en staðan var auglýst 30. október sl. með umsóknarfresti til 19. nóvember.
