Siðaráð//

Siðaráð Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) telur mikilvægt að hafa forgöngu um og taka þátt í umræðu um viðfangsefni sem lúta að siðfræði í hjúkrun og heilbrigðisþjónustu. Siðaráð er faglegt úrræði og skal vera sýnilegt, aðgengilegt og virkt í umræðu um siðfræðileg málefni og álitamál.

Tilgangur
Siðaráð er faglegur farvegur Fíh fyrir siðfræðileg álitamál. Það skal vera stjórn, deildum og nefndum félagsins til ráðgjafar um siðfræðileg álitaefni. Siðaráð er vettvangur hjúkrunarfræðinga og hjúkrunarfræðinema fyrir siðfræðileg álitamál sem tengjast umönnun sjúklinga, hjúkrun og heilbrigðisþjónustu og skal hafa forgöngu um umræður um siðamál innan félagsins.

Hlutverk

  1. Að fjalla um og gefa álit og umsagnir um siðfræðileg álitamál sem annað hvort koma frá stjórn félagsins, einstökum félagsmönnum eða nemendum í hjúkrunarfræði.
  2. Að taka siðfræðileg álitamál og spurningar til meðhöndlunar og umsagnar.

Skipan í ráðið 
Stjórn Fíh skipar 7 hjúkrunarfræðinga í siðaráð til tveggja ára í senn, þar af a.m.k. einn með viðurkennt framhaldsnám í siðfræði. Stjórnin tilnefnir einn þeirra sem formann en að öðru leyti skiptir ráðið með sér verkum.

Helstu verkefni

  • Endurskoðar siðareglur hjúkrunarfræðinga.
  • Kynnir og fræðir um siðareglur hjúkrunarfræðinga.
  • Hefur forgöngu um umræðu um siðareglur og siðfræði innan hjúkrunar og í heilbrigðisþjónustunni.
  • Fjallar um og gefur álit og umsögn um siðfræðileg álitamál sem berast.
  • Tekur til umræðu og veitir umsögn um siðfræðileg álitamál sem eru í brennidepli hverju sinni og kynnir niðurstöður sínar á vefsvæði Fíh.
  • Tekur þátt í opinberri umræðu um málefni er tengjast siðfræðilegu efni og álitamálum varðandi hjúkrun, heilbrigðisþjónustu og samfélag.
  • Starfar með innlendum og erlendum kollegum og siðaráðum.
  • Er, í samráði við formann eða framkvæmdaráð félagsins,  tengiliður  Fíh við fjölmiðla varðandi siðfræði í hjúkrun og umræðu um siðfræðileg málefni í samfélaginu sem snúa að hjúkrun og hjúkrunarfræðingum sérstaklega.

Starfsreglur
Siðaráð setur sér starfsreglur og skulu þær samþykktar á aðalfundi félagsins. Þær skal endurskoða reglulega.

Daglegur rekstur
Siðaráð hefur aðstöðu í húsnæði félagsins og nýtur þjónustu starfsmanna skrifstofu þess eftir því sem við á.

Fundir 
Siðaráð skal funda mánaðarlega yfir vetrartímann og eftir þörfum. Ráðið getur heimilað öðrum aðilum setu á fundum þess og hafi þeir þá málfrelsi og tillögurétt. Þóknun fyrir fundarsetur er samkvæmt reglum félagsins þar um. Fundargerðir skulu skráðar og vistaðar á aðgangsstýrðu vefsvæði nefndarinnar.

Ársskýrsla
Siðaráð skilar skýrslu um starfsemi sína til stjórnar Fíh fyrir lok marsmánaðar ár hvert.

Í siðaráði sitja

Aðalheiður D. Matthíasdóttir
formaður

Arnrún Halla Arnórsdóttir
Birna Óskarsdóttir
Kristín Sólveig Bjarnadóttir
Linda Þórisdóttir
Lovísa Baldursdóttir
Ragnheiður Alfreðsdóttir


Siðaráð er skipað frá janúar 2013 til desember 2014