Formaður á vaktinni//

13. maí 2012//

Athygliverðar tölur

Landsamband heilbrigðisstofnana hélt vorfund sinn á Egilsstöðum sl. föstudag. Ég flutti þar erindi um „mannauð til framtíðar“. Við undirbúning erindisins dró ég saman fjöldann allan af athygliverðum tölum eins og þessum:

06. maí 2012//

Hjúkrunarfræðingar skipta sköpum

Í mars hefti British Medical Journal birtist grein um öryggi sjúklinga og gæði sjúkrahúsþjónustu eftir Lindu Aiken og samstarfsmenn hennar. Þar er gerð grein fyrir hluta niðurstaðna úr hinni viðamiklu rannsókn RN4CAST. Rannsóknin byggir á gögnum frá 459 sjúkrahúsum í 12 Evrópulöndum auk Kína, Bandaríkjanna, Suður Afríku og Botswana. Alls 16.500 hjúkrunarfræðingar tóku þátt í þessari rannsókn.

03. apr. 2012//

Starfsumhverfiskönnun á Landspítala

Fyrstu niðurstöður starfsumhverfiskönnunar sem gerð var á Landspítalanum (LSH) fyrri hluta marsmánaðar hafa nú verið birtar. Stjórnendur LSH eiga heiður skilinn fyrir að gera slíkar kannanir reglulega og ekki síður að bregðast við niðurstöðunum. Það er í öllu falli freistandi að draga þá ályktun að aukin þátttaka starfsmanna í könnuninni nú samanborið við þátttökuna 2010, sýni að starfsmenn telji að tekið sé mark á niðurstöðunum.

20. mar. 2012//

Læknar sem leggjast lágt

Síðustu daga hefur mikil umræða farið fram í fjölmiðlum um frumvarp velferðarráðherra um heimild til hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra til að ávísa hormónatengdum getnaðarvörnum. Ummæli skólahjúkrunarfræðings um að þess væru dæmi að allt að 11 ára stúlkubörn væru farin að lifa kynlífi voru gripin á lofti og gerð að aðalatriði umræðunnar. Einstaka læknar hafa með markvissum hætti reynt að grafa undan trúverðugleika skólahjúkrunarfræðinga

13. mar. 2012//

Ertu með umslag?

Þessi spurning er víst algeng í heilbrigðiskerfinu í Grikklandi. Þar er fólk sem leitar heilbrigðisþjónustu spurt um hið fræga umslag og spurningin þýðir hvort viðkomandi sé tilbúinn til að greiða aukalega fyrir þjónustuna. Með beinni peningagreiðslu í umslagi fær sá hinn sami betri og skjótari þjónustu.

20. feb. 2012//

Kjarabætur

Að mínu mati hefur bæði verkalýðshreyfingunni og launamönnum hætt til að líta tiltölulega þröngt á hugtakið kjör. Okkur hættir til að leggja ofur áherslu á launahækkanir en veltum minna fyrir okkur því sem fer úr buddunni. Í undanförnum kjarasamningum höfum við séð skýr dæmi um víxlverkun launahækkana og verðbólgu,

01. feb. 2012//

Af stað eftir annasamt hlé!

Allt of langt er liðið síðan ég skrifaði síðasta pistil hér á vaktinni. Þetta hlé kom ekki til af efnisskorti, síður en svo. Í raun var það kannski hið gagnstæða því þegar allt er á fullu er það, sem ekki þarf nauðsynlega að klára í dag, sett á bið til morguns.

17. nóv. 2011//

Nú hillir undir stefnu í heilbrigðismálum

Velferðarráðherra kynnti fyrir stuttu niðurstöður ráðgjafahóps um skipulag heilbrigðisþjónustu og ráðstöfun fjármuna. Sú vinna sem liggur að baki þessari skýrslu var sannarlega löngu tímabær og mikið fagnaðarefni

08. nóv. 2011//

Sparnaðarhugmyndir frá starfsfólki

Ég hef verið hugsi undanfarið út af þessari nýju tísku að virkja starfsfólk á heilbrigðisstofnunum til að koma með hugmyndir að sparnaði.

28. okt. 2011//

Starfsfólki hrósað

Hrós er eitt af jákvæðu öflunum í lífinu. Öll viljum við að okkur sé hrósað fyrir vel unnin störf. Hrós stjórnenda hefur til dæmis mikil áhrif á starfsánægju undirmanna.

 
Elsa B. Friðfinnsdóttir
Elsa B. Friðfinnsdóttir
Formaður