Pistlar eftir mánuðum//

25.01.2007  //

Mikilvægi þjónustusamninga

Um fátt hefur verið meira rætt undanfarna daga en málefni Byrgisins. Ýmsum hliðum á starfsemi Byrgisins hefur verið velt upp og hér ætla ég að gera fjárveitingar ríkisins, samninga og eftirlit að umtalsefni.

18.01.2007  //

Mannekla í hjúkrun - hvað er til ráða?

Á síðustu mánuðum og misserum hef ég oft vitnað til Mannekluskýrslunnar góðu, sem gefin var út af Fíh árið 1999. Þar voru settar fram merkar tölulegar upplýsingar um fjölda hjúkrunarfræðinga, starfshlutfall þeirra, fjölda stöðugilda, áætlaða þörf fyrir hjúkrunarfræðinga o.m.fl. Þar var einnig sett fram spá um þann fjölda hjúkrunarfræðinga sem árlega þyrftu að ljúka námi og koma til starfa, til að unnt væri að manna þann fjölda stöðugilda hjúkrunarfræðinga sem talin var þörf fyrir. Þessi skýrsla var afar vönduð í alla staði og hefur nýst mjög vel.

11.01.2007  //

Mannekla og laun

Nú hafa fimmtudagspistlar mínir verið í fríi all lengi og tímabært að setjast við skriftir að nýju. Eins og gefur að skilja hefur fjöldamargt pistlatækt átt sé stað frá því að ég skrifaði síðasta pistil. Meðal annars hefur verið rætt um mannauð og manneklu í hjúkrun, um öldrunarþjónustu, um frumvarp til laga um heilbrigðisþjónustu, um nýbyggingu fyrir LSH, um menntunarmál o.fl. o.fl. Að mínu mati hefur hins vegar ótrúlega lítið farið fyrir umræðu um launamál hjúkrunarfræðinga og því ætla ég að gera þau að umtalsefni í þessum pistli.