Pistlar eftir mánuðum//
Leiðin til árangurs
Síðastliðið fimmtudagskvöld stóð stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga fyrir opnum fundi um mannafla í hjúkrun. Á fundinum kynnti Ingimar Einarsson, skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, spá um þörf fyrir vinnuafl í heilbrigðiskerfinu. Þá kynnti Jón Aðalbjörn Jónsson nýjar upplýsingar um manneklu í hjúkrun, þ.e. uppfærslu mannekluskýrslunnar góðu frá 1999. Hann hefur undanfarnar vikur unnið að skýrslu um málið í framhaldi af upplýsingaöflun Aðalbjargar Finnbogadóttur.
Mega allir segja allt um alla allsstaðar?
Á síðasta ári hlaut maður dóm fyrir að verða öðrum manni að bana á skemmtistað. Dómurinn þótti mildur og sú skýring gefin á því að sakborningurinn hefði fengið svo óvægna meðferð í fjölmiðlum. Þarna var því ekki einungis viðurkennt að fjölmiðlar gætu tekið sér dómsvald með því að fjalla um manninn sem sekan áður en sekt var sönnuð, heldur einnig að fjölmiðlar hefðu einhvers konar refsivald, menn tækju út hluta refsingar sinnar í fjölmiðlum. Oft er talað um fjölmiðla sem fjórða valdið. Þeir hafa mikil áhrif á skoðanamyndun, setja mál í forgang og hafa áhrif á gildismat okkar með efnistökum á hverjum tíma.
Mannafli í hjúkrun
Undanfarna mánuði og misseri hefur mikil umræða verið hér á landi um manneklu í hjúkrun. Hjúkrunarfræðingar ræddu á hjúkrunarþingi í nóvember sl. um mannauð í hjúkrun og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið hefur nýverið gefið út skýrslu um þörf fyrir vinnuafl í heilbrigðisþjónustunni. Auk þessa er nú verið að leggja lokahönd á uppfærslu mannekluskýrslunnar góðu sem gefin var út á vegum félagsins árið 1999. Allt þetta gefur hjúkrunarfræðingum grunn til að byggja umræður og aðgerðir á til framtíðar. Stjórn Fíh leggur áherslu á að rödd hjúkrunarfræðinga heyrist í samfélaginu, og að stefna og aðgerðir stjórnar félagsins endurspegli áherslur félagsmanna.
Ríkir jöfnuður og réttlæti í öldrunarþjónustunni?
Einn af grundvöllum hins íslenska heilbrigðiskerfis er að allir hafi jafnan aðgang að þjónustu, að eitt og sama kerfið gildi fyrir alla. Eða því viljum við trúa. Mörg undanfarin ár hafa risið upp gagnrýnisöldur ef einhver minnist á mörguleika þess að þeir sem efni hafa á geti keypt sér þjónustu umfram aðra eða stytt biðtímann eftir þjónustunni. Þá skapast heitar umræður um tvöfalt heilbrigðiskerfi sem er eitur í beinum flestra landsmanna.
