Pistlar eftir mánuðum//

31.05.2007  //

Hver eru hlutverk forystumanna?

Það er ekki úr vegi að velta fyrir sér hver séu helstu verkefni forystumanna, svona stuttu eftir kosningar og skipun nýrrar ríkisstjórnar. Eins og gefur að skilja hefur fjöldi fræðimanna sett fram kenningar um hverjir séu eiginleikar forystumanna og hver séu helstu verkefni þeirra.

24.05.2007  //

Hvers er að vænta í heilbrigðismálum?

Stjórnarsáttmálar nýrra ríkisstjórna eru alltaf spennandi lesning fyrir þá sem hafa brennandi áhuga á þjóðmálum. Þeir eru ekki síður spennandi fyrir þá sem stýra hagsmunasamtökum. Hvaða áherslur hefur ný ríkisstjórn í kjaramálum, í jafnréttismálum, í skattamálum, í heilbrigðismálum, í málefnum aldraðra, í tryggingamálum o.s.frv? Stjórnarsáttmáli ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar var birtur í gær. Af lesningu hans má sjá útlínurnar í því hvers er að vænta á næstu fjórum árum.

17.05.2007  //

Útvistun verkefna og sveigjanlegt vinnuumhverfi

Ályktanir fulltrúaþings Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa vakið talsverða athygli fjölmiðla, ekki hvað ályktunin um aukna möguleika hjúkrunarfræðinga til sjálfsstæðs reksturs, í ljósi ákvæða nýrra laga um heilbrigðisþjónustu. Í lögunum, sem taka gildi þann 1. september næstkomandi, er áhersla lögð á útboð og útvistun þjónustu. Hjúkrunarfræðingar geta þá, eins og aðrir hópar heilbrigðisstarfsmanna, sóst eftir því að taka að sér afmarkaða þætti þjónustu, sem unnin yrði skv. skilgreindum þjónustusamningum.

10.05.2007  //

Fulltrúaþing og fyrirheit um bætt kjör

Fulltrúaþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga var haldið síðastliðinn mánudag og þriðjudag. Þetta þing var einstaklega kröftugt og gott. Í fyrsta sinn í langan tíma var vandalaust að manna þingið og reyndar vildu fleiri hafa atkvæðisrétt en lög félagsins gera ráð fyrir.

03.05.2007  //

Fleiri hjúkrunarrými en færra fagfólk

Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar eiga fleira sameiginlegt en að vinna við hjúkrun og vera kvennastéttir. Báðar glíma stéttirnar við manneklu og ekki síður við allt of lág laun. Það er mikilvægt að þessar tvær nánu samstarfsstéttir standi saman, ekki aðeins til að tryggja gæði þeirrar þjónustu sem skjólstæðingar hjúkrunar fá, heldur einnig í baráttunni fyrir betri kjörum.