Pistlar eftir mánuðum//
Tímamótayfirlýsing forseta heilbrigðisvísindasviðs HÍ
Segja má að Sigurður Guðmundsson, forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands og fyrrverandi landlæknir, hafi gefið út tímamótayfirlýsingu í fjölmiðlum um helgina. Í tengslum við umræðu um læknaskort og viðbrögð við honum sagði Sigurður að nú væri tækifæri til að endurhanna heilbrigðisþjónustuna.
Svört skýrsla um FSA
Í ljósi þessa er einkennilegt að velferðarráðherra hafi einmitt valið þann aðila úr hinni gagnrýndu framkvæmdastjórn spítalans sem er yfirmaður lækna, þ.e. framkvæmdastjóra lækninga, til að gegna forstjórastöðunni á sjúkrahúsinu eftir að Halldór Jónsson var settur í leyfi/settur af. Eðlilegast hefði að mínu mati verið að fá aðila utan sjúkrahússins til að taka verkefnið að sér.
Góðar fréttir af framhaldsskólanemum
Sá einstaki hópur sem hefur best aðgengi að börnum og fjölskyldum þeirra eru skólahjúkrunarfræðingar. Þeir hafa unnið gríðarlega gott forvarnastarf í grunnskólum, forvarnastarf sem þarf enn að efla.
Loksins samið
Í nótt náðist sá ánægjulegi áfangi að samninganefndir Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og samninganefnd ríkisins undirrituðu nýjan kjarasamning. Hjúkrunarfræðingar hafa ekki fengið kjarasamningsbundnar hækkanir í tæp þrjú ár svo löngu var tímabært að samningar næðust.
