Pistlar eftir mánuðum//

03.04.2012  //

Starfsumhverfiskönnun á Landspítala

Fyrstu niðurstöður starfsumhverfiskönnunar sem gerð var á Landspítalanum (LSH) fyrri hluta marsmánaðar hafa nú verið birtar. Stjórnendur LSH eiga heiður skilinn fyrir að gera slíkar kannanir reglulega og ekki síður að bregðast við niðurstöðunum. Það er í öllu falli freistandi að draga þá ályktun að aukin þátttaka starfsmanna í könnuninni nú samanborið við þátttökuna 2010, sýni að starfsmenn telji að tekið sé mark á niðurstöðunum.