Starfsmannastefna Fíh//
Starfsmannastefna Fíh
Stjórn Fíh hefur á fundi sínum þann 12. desember 2005 samþykkt starfsmannastefnu sem nær til allra þeirra sem ráðnir eru til starfa hjá Fíh. Um almenn réttindi og skyldur starfsmanna félagsins fer eftir ákvæðum laga, samþykkta, kjarasamningum svo og ráðningarsamningum.
Það er markmiðið með setningu starfsmannastefnu, að leitast við að tryggja að vinnustaður Fíh sé góður og að þar þróist fagþekking, verkkunnátta og þjónustulund í samræmi við markmið stjórnar og þarfir félagsins. Starfsmannastefnunni er ætlað að ná fram eftirtöldum markmiðum:
-
Að ráða hæft, áhugasamt og traust starfsfólk og efla það í starfi.
-
Að tryggja góða vinnuaðstöðu fyrir starfsfólk og leggja kapp á að aðbúnaður og hollustuhættir á vinnustað séu í góðu horfi.
-
Að gagnkvæmt traust og gott samstarf ríki meðal starfsfólks og milli starfsfólks og kjörinna fulltrúa.
-
Að starfsfólk eigi kost á fræðslu og endurmenntun sem eykur þekkingu þess í starfi.
-
Að starfsfólk sé vel upplýst um verkefni sín og skyldur svo og um stjórnkerfi Fíh, hlutverk og tengsl við einstaka stjórnarmenn.
-
Að þarfir félagsmanna sem njóta eiga þjónustu hafi forgang.
-
Að þjónustan sé góð að mati félagsmanna.
-
Að starfsemi félagsins og sjóða þess eða sjóða í þess vörslu sé skilvirk og hagkvæm.
-
Að valdi, ábyrgð og ákvörðunum sé dreift, þannig að sjálfstæði og frumkvæði starfsmanna sé sem mest.
