Tilkynning//

Orðræða í hjúkrun//



Samvinna hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum

Norræn ráðstefna, 23.- 24. nóvember 2010 i Stokkhólmi

 

Orðræða í hjúkrun

Gæði og sjúklingaöryggi með hjálp gæðavísa og fagmáls

 

”If you cannot name it, you cannot practice it, control it, teach it, finance it or put it into public policy” – Norma Lang 1992

 

“Allir” segja að þörf sé fyrir betri skráningu, mælingar og vöktun á gæðum í heilbrigðiskerf-inu.  Hvað á að mæla og hvernig? Er mögulegt að mæla gæði í hjúkrun? Hvernig finnum við traustar upplýsingar, sem segja eitthvað um gæðin í hjúkruninni?


SSN hefur síðustu ár unnið að þróun hjúkrunarnæmra gæðavísa og fagmáls hjúkrunar.  Þessi tvö svið eru forsenda þess að hægt sé að eiga nákvæm samskipti í hjúkrun með ”sameiginlegu máli”.

 

Á ráðstefnunni verða kynntar forsendur, innihald og niðurstöður Norrænna hjúkrunarransókna, sem eru framlag til þróunar vísa um góða hjúkrun. Jafnframt fer fram umræða um framlag Norðurlandanna til samvinnu um fagmál í hjúkrun.

 

Dagskrá
Smelltu hér til að skrá þig

 

 

 

                        


Til baka