Um fagdeildina
Langvinn lungnateppa er algengur sjúkdómur, sem koma má í veg fyrir og meðhöndla. Þessi sjúkdómur er ein algengasta dánarorsök fólks í heiminum og til mikils að vinna ef tekst að finna leiðir til að fyrirbyggja hann, eða greina sem fyrst svo hægt sé að hefja meðhöndlun á meðan sjúkdómurinn er enn á frumstigi.
Hjúkrun lungnasjúklinga er kennd í grunn- og framhaldsnámi í hjúkrunarfræði, sem hluti af stærri námskeiðum og nokkur fjöldi hjúkrunarfræðinga hefur einnig lokið rannsóknatengdu meistaranámi í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri, með áherslu á hjúkrun lungnasjúklinga.
Samstarf við Samtök lungnasjúklinga
Fagdeild lungnahjúkrunarfræðinga starfar náið með Samtökum lungnasjúklinga og á að minnsta kosti einn mann í stjórn samtakanna á hverjum tíma.
Virkni fagdeildarinnar
Rafrænt fréttabréf fagdeildarinnar gefið út einu sinni á ári og er aðgengilegt á Fb síðu fagdeildarinnar og á svæði fagdeildarinnar á vef Fíh. Fréttabréfið er kjötmikið, en hjúkrunarfræðingar sem hafa þegið styrki til starfa sinna, hafa tekið virkan þátt í að skrifa fréttabréfið.
Fagdeild lungnahjúkrunarfræðinga heldur tvo fasta almenna fræðslufundi, þ.e. haustfund og vorfund, sem er jafnframt aðalfundur.
Stjórn heldur fundi einu sinni í mánuði, annaðhvort í húsnæði Fíh við Suðurlandsbraut eða á TEAMS.
Erlent samstarf
Fagdeildin á samstarf við erlenda hjúkrunarfræðinga, t.d. í Noregi, Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð.
Ráðstefnan Nordic Lung Congress er stór, þverfagleg norræn lungnaráðstefna, sem er haldin til skiptis á Norðurlöndum. Hún er haldin í Reykjavík á tíu ára fresti og er þá á ábyrgð Fagdeildar lungnahjúkrunarfræðinga og Félags lungnalækna, sem skipa sameiginlega nefnd til undirbúnings og framkvæmdar. Undirbúningur að slíkri ráðstefnu tekur um tvö ár.
Fagdeildin er líka í samstarfi við Evrópusamtök lækna og hjúkrunarfræðinga um öndunarfærasjúkdóma (European Respiratory Society, ERS). Þau halda á hverju hausti stóra þverfaglega lungnaráðstefnu, en hún hefur aldrei verið haldin á Íslandi.
Innan ERS eru sérstakar deildir fyrir ýmsa faghópa. Assembly 9 er sameiginleg deild fyrir hjúkrunarfræðinga og fleiri faghópa. Sú deild skiptist í þrjár deildir, 9.1 sem er deild tæknifólks í meðferð lungnasjúklinga – hjúkrunarfræðingar taka þátt í þeirri deild. 9.2 er deild sjúkraþjálfara og 9.3 er deild hjúkrunarfræðinga. Því fleiri hjúkrunarfræðingar sem skrá sig í deild 9.3 innan ERS, því meiri möguleikar bjóðast þeim til að hafa áhrif á störf ERS og framlag á ráðstefnunni. Sömuleiðis skiptir máli að fræðilegt efni sem sent er til kynningar á ERS ráðstefnunni (fyrirlestrar eða veggspjöld) sé merkt hjúkrunarfræðingahópnum, 9.3, því þannig eykst það pláss sem hjúkrunarfræðingar fá til að kynna sitt efni.
Innan ERS starfa einnig önnur samtök hjúkrunarfræðinga, European Respiratory Nurse Association, skammstafað ERNA. Þau samtök hafa á sinni stefnuskrá að efla samvinnu hjúkrunarfræðinga í Evrópu, en eru óháð stjórn ERS. Tengiliður hjúkrunarfræðinga við ERNA er Gurpreet Randhawa, [email protected]
Stjórn
Formaður
Sigríður Erla Sigurðardóttir
Gjaldkeri
Kolbrún Sigurlásdóttir
Guðrún Árný Guðmundsdóttir
Karin Sandberg
Hrönn Árnadóttir
Fræðastörf
Hugmyndafræði lungnahjúkrunar er að veita örugga, árangursríka og einstaklingshæfða, fjölskyldumiðaða hjúkrun, sem byggð er á gagnreyndri þekkingu, umhyggju, kærleika og virðingu. Hjúkrunarmeðferðin tekur mið af líkamlegum, andlegum, trúarlegum, menningarbundnum og félagslegum þörfum sjúklinga.
Meðlimir fagdeildarinnar hafa lagt sig fram um að afla sér menntunar og þekkingar sem nýtist til að bæta hag lungnasjúklinga og þróun hjúkrunarmeðferðar fyrir þá. Þessi hópur er virkur í rannsóknum og fræðastörfum og birtir niðurstöður rannsókna sinna í ritrýndum tímaritum og fagráðstefnum. Í fagdeildinni er einn hjúkrunarfræðingur með doktorspróf og gegnir stöðu prófessors við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og allmargir hafa aflað sér meistaragráðu og hafa leyfi Embættis landlæknis til að kallast sérfræðingar í hjúkrun.
Ritrýndar fræðigreinar birtar af hjúkrunarfræðingum í Fagdeild lungnahjúkrunarfræðinga.
Líknarmeðferð fyrir sjúklinga með langvinna lungnateppu: Að vera samstíga
Guðrún Jónsdóttir, Helga Jónsdóttir. 3. tbl 2016
Tæknileg færni og öndun við notkun innöndunartækja hjá einstaklingum með langvinna lungnateppu og astma
Anna María Leifsdóttir, Helga Jónsdóttir, Þorbjörg Sóley Ingadóttir. 2. tbl. 2016
Líflínan – Reynsla fólks með alvarlegan psoriasis sem er í meðferð með lífefnalyfjum
Inga Þorbjörg Steindórsdóttir, Þóra Jenný Gunnarsdóttir og Helga Jónsdóttir. 4. tbl.2012
Lífsgæði og lífsgæðarannsóknir
Kolbrún Albertsdóttir, Helga Jónsdóttir og Björn Guðbjörnsson. 4. tbl 2009
Menntasjóður
Styrkjum úr Menntasjóði ætlað að efla meðlimi fagdeildarinnar í klínísku starfi og skulu styrkþegar leggja til efni í árlegt fréttabréf, erindi til flutnings á fundum fagdeildarinnar eða taka þátt í öðrum verkefnum að beiðni stjórnar.
Styrkir úr Menntasjóði eru veittir samkvæmt ákvörðun stjórnar ár hvert og getur hver félagi í mesta lagi fengið styrk annað hvert ár. Markmiðið er að úthlutun styrkja úr sjóðnum fari ekki yfir innkomu fagdeildarinnar af félagsgjöldum ár hvert, mögulegir styrkþegar þurfa að vera félagar í fagdeildinni og hafa greitt árgjaldið síðastliðin þrjú ár. Umsóknir skulu sendar á netfang gjaldkera fagdeildarinnar og innihalda eftirtaldar upplýsingar: Nafn, kennitölu, reikningsnúmer, vinnustað, í hvað á að nýta styrkinn og stutta samantekt um hvernig efnið mun nýtast til að efla hjúkrun lungnasjúklinga.
Starfsreglur
Fagdeild lungnahjúkrunarfræðinga
Deildin heitir Fagdeild lungnahjúkrunarfræðinga og heyrir undir fagsvið Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Deildin var stofnuð árið 1996.
Hlutverk
Fagdeild lungnahjúkrunarfræðinga vinnur að framgangi hjúkrunar á sérsviði hjúkrunar lungnasjúklinga í samvinnu við fagsvið Fíh og er stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og nefndum, til ráðgjafar um málefni á sérsviði fagdeildarinnar (sbr. lög Fíh, 16.gr. Fagdeildir).
Aðild
Hjúkrunarfræðingar í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga sem hafa áhuga á hjúkrun lungnasjúklinga geta orðið aðilar að fagdeildinni. Stjórn fagdeildarinnar sér um skráningu í fagdeildina, sjá tengil á vefsíðu Fíh, www.hjukrun.is
Stjórn
Í stjórn skulu að lágmarki vera:
Formaður, ritari, gjaldkeri og tveir meðstjórnendur. Formaður skal kosinn á aðalfundi, en stjórn skiptir með sér verkum að öðru leyti. Auk þess skulu kosnir tveir skoðunarmenn reikninga. Kjörtímabil er tvö ár og endurkjör er heimilt, en þó skal enginn sitja í stjórn lengur en sex ár samfellt, hverju sinni. Í stjórn Fagdeildar lungnahjúkrunarfræðinga skal vera a.m.k. einn stjórnarmaður með viðbótar- og/eða framhaldsnám á sérsviði hjúkrunar lungnasjúklinga.
Aðalfundur
Aðalfundur Fagdeildar lungnahjúkrunarfræðinga skal haldinn í apríl ár hvert og skal boða til hans rafrænt með að minnsta kosti tveggja vikna fyrirvara. Reikningsnúmer fagdeildarinnar skulu koma fram í ársreikningi og skal ársreikningur lagður fram á aðalfundi.
Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað. Á dagskrá skulu vera venjuleg aðalfundarstörf.
Fjárreiður
Bankareikningar Fagdeildar lungnahjúkrunarfræðinga skulu vera á kennitölu fagdeildarinnar. Árgjald og innheimta þess er ákveðið á aðalfundi. Tveir skoðunarmenn reikninga skulu kosnir á aðalfundi.
Um stefnuna
Stefna Fagdeildar lungnahjúkrunarfræðinga beinist að sérsviði fagdeildarinnar og felst í því að..
- vinna að framgangi hjúkrunar
- standa vörð um fagmennsku í hjúkrun
- stuðla að þróun hjúkrunarþekkingar
- stuðla að eflingu rannsókna
- vera málsvari hjúkrunar
- hvetja félagsmenn til virkrar þátttöku í þverfaglegu samstarfi um hjúkrun lungnasjúklinga
- stuðla að og taka þátt í að veita fræðslu um hjúkrun lungnasjúklinga
- halda uppi virkum tengslum við fagfélög lungnahjúkrunarfræðinga hérlendis og erlendis
Sviðsstjóra fagsviðs Fíh skal kynnt stefnan og skal stefnan endurskoðuð árlega, fyrir aðalfund fagdeildarinnar.
Ársskýrsla
Fagdeild lungnahjúkrunarfræðinga skal skila skýrslu um starfsemi deildarinnar til sviðsstjóra fagsviðs Fíh fyrir lok aprílmánaðar ár hvert.
Merki fagdeildar lungnahjúkrunarfræðinga
Merki Fagdeildar lungnahjúkrunarfræðinga var hannað af auglýsingastofunni Merkismenn í samvinnu við stjórn fagdeildarinnar. Rauði liturinn í merkinu táknar súrefnisríkt blóðið sem flæðir um líkamann, blái liturinn það súrefnissnauða sem kemur til baka til lungnanna frá vefjum líkamans. Sveipirnir í lungunum tákna loftflæðið um þetta mikilvæga líffæri.
Slit fagdeildar
Fagdeild er hægt að leggja niður á aðalfundi fagdeildar. Einnig getur aðalfundur Fíh ákveðið að leggja niður fagdeild hafi hún ekki skilað ársskýrslu til sviðsstjóra fagsviðs Fíh tvö ár í röð.
(Sjá Gæðaskjal í vörslu sviðsstjóra Fagsviðs Fíh, um stofnun, hlutverk og slit fagdeilda)
Samþykkt á aðalfundi Fagdeildar lungnahjúkrunarfræðinga
26. apríl 2018.