Andrea Ýr Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og framkvæmdastjóri Heilsulausna, starfaði á bráðamóttökunni í Fossvogi og síðar á Akranesi áður en hún fór alfarið að sinna fyrirtækinu.
„Þetta er svo ótrúlega góð menntun. Ef maður spáir í því þá getur hjúkrunarfræðinámið opnað svo rosalega mikið fyrir manni. Maður getur unnið við svo rosalega margt. Það þarf ekki að vera alltaf inni á spítala eða einhverju svoleiðis, þetta getur verið alls konar. Ég er einmitt búin að vera að kynnast því síðustu árin, mér finnst rosalega skemmtilegt að sjá hvað það er mikið í boði,“ segir hún.
Andrea Ýr segir það hafa verið töluverð viðbrigði frá því að starfa á spítala.
„Að vera með sett verkefni á ákveðnum tíma yfir í að þurfa sjálf að fara að skipuleggja hvenær vinna á verkefnin og hvernig. Þetta var mikið stökk en ofboðslega skemmtilegt og mjög lærdómsríkt. Ég sé alls ekki eftir þessu, mér finnst þetta ótrúlega skemmtilegt.“