Atkvæðagreiðsla vegna kjarasamnings Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) við ríkið fór fram dagana 2. desember kl. 18:00 til 6. desember kl. 12:00. Á kjörskrá voru 96, eða þeir hjúkrunarfræðingar sem fengið höfðu laun skv. kjarasamningi félagsins við Reykjavíkurborg og eru með fulla aðild að Fíh. Alls tóku 78,13% þátt í atkvæðagreiðslunni.
Niðurstaðan var eftirfarandi:
- Já sögðu
93,33%
- Nei sögðu
4,0%
- Tóku ekki afstöðu
2,67%
Kjarasamningur undirritaður þann 28. nóvember 2024 hefur því verið samþykktur af atkvæðabæru félagsfólki Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og tekur því nýr samningur gildi frá 1. apríl 2024 og gildir til 31. mars 2028.