Fara á efnissvæði
Frétt

Kjarasamningur við ríkið samþykktur

Nýr kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga við ríkið var samþykktur í atkvæðagreiðslu.

Atkvæðagreiðsla vegna kjarasamnings Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) við ríkið fór fram dagana 20. nóvember kl. 12:00 til 25. nóvember kl. 12:00. Á kjörskrá voru 2.870, eða þeir hjúkrunarfræðingar sem fengið höfðu laun skv. kjarasamningi félagsins við ríkið. Alls tóku 81,95% þátt í atkvæðagreiðslunni.

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já sögðu

85,63%

Nei sögðu

13,61%

Tóku ekki afstöðu

0,77%

Kjarasamningur undirritaður þann 14. nóvember 2024 hefur því verið samþykktur af atkvæðabæru félagsfólki Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og tekur því nýr samningur gildi frá 1. apríl 2024 og gildir til 31. mars 2028.