Fara á efnissvæði
Frétt

Kjarasamningur við ríkið undirritaður

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur skrifað undir kjarasamning við ríkið. Kynningar standa yfir í vikunni.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga skrifaði undir nýjan kjarasamning við ríkið eftir hádegi 14. nóvember 2024.

Kjarasamningurinn er til fjögurra ára og gildir afturvirkt frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028. Í samningnum eru tekin mikilvæg skref til að hækka laun og önnur kjör hjúkrunarfræðinga til samræmis við aðra háskólamenntaða sérfræðinga auk þess sem vinnutími dagvinnufólks verður festur í sessi miðað við 36 klukkustunda vinnuviku. Þá verður starfsmenntunarsjóður efldur og framlag hækkað á samningstímanum. Einnig er lagður grunnur að markvissum stuðningi í vegferð að sérfræðileyfi hjúkrunarfræðinga.

Kynningar

Kynningar á samningnum fyrir hjúkrunarfræðingum sem starfa hjá ríkinu fara fram á fimm fundum í vikunni, þar á meðal einum á ensku. Dagsetningar og staðsetningar eru aðgengilegar á Mínum síðum.

Atkvæðagreiðsla

Samningurinn tekur gildi ef hann er samþykktur með meirihluta atkvæða. Rafræn atkvæðagreiðsla fer fram á Mínum síðum. Þar má finna nánari upplýsingar.

Á kjörskrá eru hjúkrunarfræðingar sem starfa undir samningnum og eru með fulla aðild að félaginu, aðrir fá ekki kjörseðil. Ef þú færð ekki kjörseðil en telur þig eiga rétt á því að taka þátt í atkvæðagreiðslunni þá er hægt að hafa samband við kjara- og réttindasvið Fíh, [email protected].