Fara á efnissvæði
Frétt

Kjarasamningur við Samband íslenskra sveitarfélaga samþykktur

Nýr kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga við Samband íslenskra sveitarfélaga var samþykktur í atkvæðagreiðslu.

Atkvæðagreiðsla vegna kjarasamnings Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) við Samband íslenskra sveitarfélaga fór fram dagana 4. desember kl. 19:00 til 9. desember kl. 12:00. Á kjörskrá voru 51, eða þeir hjúkrunarfræðingar sem fengið höfðu laun skv. kjarasamningi félagsins við Sambandið og eru með fulla aðild að Fíh. Alls tóku 62,75% þátt í atkvæðagreiðslunni.

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já sögðu

93,75%

Nei sögðu

6,25%

Tóku ekki afstöðu

0%

Kjarasamningur undirritaður þann 29. nóvember 2024 hefur því verið samþykktur af atkvæðabæru félagsfólki Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og tekur því nýr samningur gildi frá 1. apríl 2024 og gildir til 31. mars 2028.