Fara á efnissvæði
Frétt

Kjarasamningur við SFV samþykktur

Nýr kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu var samþykktur í atkvæðagreiðslu.

Atkvæðagreiðsla vegna kjarasamnings Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu fór fram dagana 9. desember kl. 18:00 til 13. desember kl. 12:00. Á kjörskrá voru 430, eða þeir hjúkrunarfræðingar sem fengið höfðu laun skv. kjarasamningi félagsins við SFV og eru með fulla aðild að Fíh. Alls tóku 71,63% þátt í atkvæðagreiðslunni.

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já sögðu

94,16%

Nei sögðu

5,52%

Tóku ekki afstöðu

0,32%

Kjarasamningur undirritaður þann 5. desember 2024 hefur því verið samþykktur af atkvæðabæru félagsfólki Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og tekur því nýr samningur gildi frá 1. apríl 2024 og gildir til 31. mars 2028.