Þriðjudaginn 8. apríl 2025 voru greiddir út styrkir úr vísindasjóði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Heildarfjárhæð styrkja úr A-hluta vísindasjóðs í ár nam 175 milljónum kr. og var styrkur greiddur til 3.782 hjúkrunarfræðinga. Meðalstyrkur ársins nemur 46 þúsund kr. en hann var 50 þúsund kr. í fyrra. Lækkun á styrkfjárhæð má rekja til þess að frá 1. nóvember 2024 greiða ríki og stofnanir innan Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu ekki lengur í vísindasjóð og er það í samræmi við nýgerða kjarasamninga.
Í einhverjum tilvikum gekk ekki að greiða styrk ársins og er það ýmist vegna þess að bankaupplýsingar vantar eða að þær eru ranglega skráðar. Ekki er of seint að uppfæra bankaupplýsingarnar til að fá styrkinn í ár, verður hann greiddur út í framhaldi þess.
Við hvetjum hjúkrunarfræðinga því til að fara inn á Mínar síður og athuga hvort að bankareikningsupplýsingar séu rétt skráðar, en þær má skoða og lagfæra undir liðnum Mínar upplýsingar, efst í hægra horninu.