Skrifstofa Fíh lokar frá föstudeginum 12. júlí til þriðjudagsins 6. ágúst vegna sumarleyfa.
Því miður er ekki hægt að nálgast Menningarkortið á meðan skrifstofa Fíh er lokuð. Félagsfólk getur sjáft afbókað orlofshús á Orlofsvefnum en endurgreiðslan verður gerð er skrifstofan opnar aftur.
Félagsfólk sem hefur þegar bókað orlofshús getur nálgast nánari upplýsingar um bókunina á orlofsvef Fíh, velja orlofshúsin eða gjafabréf og kort, mínar bókanir eða mínar pantanir. Þar er hægt að nálgast upplýsingar um aðgengi að lyklaboxi, leigusamning og/eða hótelmiða eða gjafabréfskóða.
Styrkir úr Starfsmenntunarsjóði og Styrktarsjóði verða greiddir út í ágúst næstkomandi að undanskildum greiðslum vegna sjúkradagpeninga sem greiddir verða út 19. júlí.
Varðandi áríðandi erindi má hafa samband við formann Fíh, Guðbjörgu Pálsdóttur í gegnum netfangið [email protected].