Stjórn Vísindasjóðs auglýsir eftir umsóknum úr B-hluta sjóðsins. Umsóknir skulu berast rafrænt á þar til gerðu eyðublaði ásamt fylgiskjölum á netfangið [email protected] fyrir miðnætti 15. mars 2024.
Markmið sjóðsins er að stuðla að aukinni fræðimennsku í hjúkrun með því að styrkja rannsóknir og fræðiskrif hjúkrunarfræðinga. Aðild að sjóðnum eiga allir þeir hjúkrunarfræðingar sem eru félagsmenn í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og launagreiðendur hafa greitt fyrir í Vísindasjóð á árinu 2023.
Hér er umsóknareyðublað og leiðbeiningarmyndband. Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði Vísindasjóðs.