Fara á efnissvæði
Skýrsla

Varðveisla og sýning hjúkrunarminja

Skýrsla sögu- og minjanefndar til stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Útgefin í febrúar 2003.

Í byrjun árs 2000 skipaði stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sögu- og minjanefnd. Nefndinni er ætlað það hlutverk að skoða og ákveða á hvern hátt megi skrá og varðveita sögu hjúkrunar á Íslandi, svo og að leita leiða til að safna saman og varðveita minjar sem tengjast hjúkrun, með það í huga að stofnsetja minjasafn hjúkrunar.