Ágætar viðræður hafa átt sér stað við ríkið á undanförnum dögum þar sem aðilar hafa þokast nær hvor öðrum.
Á næstu dögum verður fundað áfram í vinnuhópum um ákveðin álitaefni.
Markmið samninganefndar Fíh er að ná góðri niðurstöðu um kjarasamninga til fjögurra ára.
Hjúkrunarfræðingar eru hvattir til að fylgjast með á þessum vettvangi eða á samfélagsmiðlum Fíh þar sem staðan getur breyst hratt.