Fara á efnissvæði
Viðburður

Bleiki dag­ur­inn 2024

Bleiki dagurinn verður miðvikudaginn 23. október.

Bleikur október er árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Bleiki dagurinn er hápunktur Bleiku slaufunnar í október ár hvert. Í ár verður Bleiki dagurinn miðvikudaginn 23. október.

Á Bleika deginum eru landsmenn hvattir til að vera bleik - fyrir okkur öll bera bleiku slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu.

Krabbameinsfélagið hvetur alla til að senda þeim skemmtilegar, bleikar myndir af sér og vinahópum eða vinnufélögum á netfangið bleikaslaufan@krabb.is og verða þær birtar á facebooksíðu Bleiku slaufunnar. Notast er við myllumerkið #bleikaslaufan