Öldungadeild Fíh fer saman í leikhúsið laugardaginn 9. nóvember í Borgarleikhúsinu á leikritið Óskaland.
Við eigum frátekna 30 miða á nafni Steinunnar Ingvarsdóttur. Verðið er 6.800 kr. Sýningin hefst kl. 20:00.
Þú þarft aðeins að hringja í miðasöluna s. 568 8000 og ganga frá kaupunum fyrir 8. október.
Hafðu samband við hollið, deildina, árganginn eða komdu ein. Við þekkjumst!
Um leikritið
Kvöldmaturinn er kominn á borð hjá hjónunum Nönnu og Villa. Hún kemur með límónaðið, hann er tilbúinn með glasamotturnar og svo setjast þau að snæðingi eins og flest kvöld undanfarin fimmtíu ár. En í stað þess að ræða um veðrið eða sjónvarpsdagskrána segist Nanna vilja skilnað og Villi samþykkir það vafningalaust. Áður en hendi er veifað eru synir þeirra hjóna, auk tengdadóttur, mætt á staðinn til að telja foreldrum sínum hughvarf. Gamalt fólk skilur ekki, gamalt fólk ætti að vita betur, gamalt fólk ætti ekki að vera með vesen! Eru þau hvort eð er ekki orðin of gömul til að vera að spá í ást og hamingju?
Hilmir Snær Guðnason stýrir þessu bráðskemmtilega verki um fjölskylduflækjur en með hlutverk fara Eggert Þorleifsson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Jörundur Ragnarsson, Vilhelm Neto, Esther Talía Casey, Katla Margrét Þorgeirsdóttir og Fannar Arnarsson.
- Dagsetning
Laugardaginn 9. nóvember
- Staðsetning
Borgarleikhúsið
- Skráning
Hringja í síma s. 568 8000 og ganga frá kaupunum fyrir 1. október.
- Verð
6.800 kr.